Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 54
52
TlJRVAIj
hátt og Bandaríkjamenn hafa
hvíta maura í húsum sínum og
með svipuðinn afleiðingum.
Draugamir hafast við í göml-
um húsum, lækka söluverð
þeirra og erfitt er að losna við
þá. Það hefur aldrei verið eins
mikið um drauga í Englandi og
eftir lok síðustu styrjaldar.
Draugar eins og Heme þjóta
upp eins og gorkúlur um ger-
valt landið. Sjaldgæfara er að
afturgönguhópar sjáist, eins og
þegar hinn þekkti prestur, séra
Anton Stephens, sá hóp fram-
liðinna munka í St. Dunstans-
sókn í Acton.
Ensk blöð skýra frá nýjum
reimleikum í Borleyprestsetr-
inu, mesta draugabæli Eng-
lands. Meðal drauganna í Borley
eru tveir höfuðlausir ökumenn,
nunna, tveir vagnhestar, og
kona, sem segir: „Gerðu það
ekki, Carlos, gerðu það ekki.“
Borleyprestsetur var byggt ár-
ið 1863. Allir, sem bjuggu í
prestsetrinu, urðu varir við
drauga, unz það eyðilagðist í
eldsvoða árið 1939. Eldurinn
kom upp með þeim hætti, að
bókahlaði féll af sjálfsdáðum
ofan á olíulampa. Á meðan hús-
ið var að brenna, birtust tvær
óþekktar manneskjur í einum
glugganum, og tvær aðrar per-
sónur, búnar skikkjmn, voru á
gangi í garðinum.
Draugar þekktust í Englandi
á miðöldum, en þeir færðust
fyrst í aukana í lok 18. aldar-
innar, enda vom þeir studdir
af gotneskum ævintýraskálö-
skap þeirra Walpole og Rad-
cliffe. Síðar urðu þeir Scott,
Dickens, Oliver Lodge og Conan
Doyle til þess að gera þá að
virðulegum þjóðfélagsborgur-
um. Draugaklúbburinn var
stofnaður árið 1862 og endur-
reistur nýlega.
Frægasti draugur Bretlands er
vafalaust afturgangan í Glamis-
kastala, bernskuheimili Eliza-
betar drottningar. Flestir, sem
gist hafa kastalann, hafa séð
þennan draug. Hann birtist oft
sem rauðbærður risi.
Önnur fræg afturganga er
vofa Katrínar Howard, sem
Hinrik VIII. lét hálshöggva,
þegar hann fékk sannanir fyrir
því, að hún hafði verið honum
ótrú. Hún slapp frá varðmönn-
unum og reyndi að komast á fund
konungsins, til þess að skýra
honum frá gerðmn sínum. En
hermennirnir náðu henni og
drógu hana burt veinandi. Vofa
hennar sézt öðra hvom hlaupa