Úrval - 01.02.1948, Síða 55
ÝMISLEGT UM ENSKA DRAUGA
53
eftir sama ganginum í Hamp-
ton Cort höllinni, og sömu vein-
in heyrast.
Draugurinn í Drury Lane
leikhúsinu er merkilegur fyrir
margra hluta sakir. Hann hræð-
ir aldrei neinn. Þúsundir manna
hafa séð hann, þar á meðal full-
ur salur áhorfenda, samkvæmt
frásögn W. MacQueen Pope,
sem er öllum mönnum fróðari
um sögu Drury Lane, enda skýr-
ir hann frá eigin reynslu. Drury
Lane draugurinn er miðlungs-
hár maður, klæddur grárri
skikkju og með þrístrendan
hatt á höfði.
Vofa Lady Hamilton, ástkonu
Nelsons, er fegurst allra aftur-
gangna 1 Englandi, að því er í-
búar hússins nr. 2 við Cambrid-
gestræti segja. Lady Hamilton
er fegurri en nokkru sinni fyrr,
en hún hefur þann leiða sið að
opna dyr, sem íbúarnir hafa
iæst.
Ef minnst er á afturgöngur
sögufrægra persóna, má nefna
svarta prinsinn, sem er á sveimi
í Hall Place, nálægt Bexley, en
þar sást hann þrisvar sinnum
á undan ósigrum Breta í fyrri
heimsstyrjöld; Sir Francis
Ðrake, sem ekur yfir Dartmoor-
heiði í svörtum vagni, dregnum
af hauslausum hestum; hinn
fræga stigamann, Dick Turpin,
sem þeysir ofan Trapshæð, ná-
lægt Loughton, þrisvar sinnum
á ári.
Síðustu fréttir af Turpin eru
frá því í júlímánuði síðastliðn-
um. Húseigandi einn, Key að
nafni, fór fram á niðurfærslu í
sköttum vegna þess, að drauga-
gangur lækkaði verðgildi húss
hans. Draugarnir voru aftur-
göngur hjóna, sem Turpin hafði
fundið myrt í kjallaranum, en
morðinu hafði hann haldið
leyndu. Verðfall enskra húsa
sökum reimleika, fer eftir því,
hvemig draugamir haga sér.
En þar sem reimleikar lækka
ávallt verð húsa, er nú svo kom-
ið, að frásagnir af draugagangi
geta kostað sögumenn f járútlát
í skaðabætur.
Meðal afturgenginna dýra í
Englandi eru hestar algengast-
ir. Venjulega eru bæði hestar
og reiðmenn höfuðlausir. Næst
á eftir hestum koma hundar og
kettir.
Þekktasta hundaafturgang-
an er á ferli í borginni Burn-
ley, og hleypur hún engu síður
aftur á bak en áfram.
Mesti draugaveiðimaður Eng-
lands, Harry Price, sem hefur