Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 56
54
ÚRVAL
verið að rannsaka reimleika í
40 ár, er efagjam á draugasög-
ur. Hann hefur rannsóknarstofu
til umráða og eyðir í þetta starf
sitt yfir 13 þúsund krónum ár-
lega. Hann rannsakar reimleika,
sem honum er skýrt frá, en
hann fær vikulega 25 bréf varð-
andi draugagang.
Price sendir bréfið áfram til
einhvers af hinum 100 aðstoð-
armönnum sínum, sem eru víðs-
vegar um England. Ef honum
lízt vel á upplýsingarnar, sem
hann fær frá aðstoðarmanninum
fer hann sjálfur á staðinn. Að-
eins eitt draugamál af hverjum
tuttugu, er þess virði, að hann
rannsaki það sjálfur, og aðeins
eitt af hverjum hundrað þeirra,
er óskýranlegt á eðlilegan hátt.
En jafnvel þótt reimleikarnir
verði ekki skýrðir, er afstaða
Price hlutlaus. Hann segir að-
eins, að hann hafi ekki næga
þekkingu til að skýra fyrir-
brigðið.
Þjóð, sem trúir á drauga get-
ur trúað á allt mögulegt. Það
má líka orða þetta svo, að þjóð,
sem trúir á drauga, trúir að
minnsta kosti á eitthvað. Hinn
aukni draugagangur í Englandi
sannar að minnsta kosti eitt,
hvað sem öðru líður: Bretar eru
hvorki orðnir kaldhæðnir né
vonlausir. Trú þeirra á aftur-
göngur er sönnun þess, að þeir
trúa enn á sjálfa sig og ósigran-
leik sinn.
* * ¥
Ást og konur.
Ástin er kannski blind, en hún ratar þó í myrkri.
— Judy Canova.
Eiginmaðurinn er fyrsta bam konunnar. -— J. Panin.
Grískar konur reikna aldur sinn frá giftingardegi en ekki frá
fæðingardegi. — Homer.
Sólaspeki.
Þeir, sem slíta skósólunum fyrst undir stórutánni, eru þráir
og metorðagjarnir. Þeir, sem slíta þeim fyrst undir litlutánni,
eru eyðslusamir. Jafnt sólaslit ber vott um jafnaðargeð og
áreiðanleik. Fellingar ofan á ristinni bera vitni þolgæði og dugn-
aði. •— Weekly Telegraph.