Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 68
66
tJRVAL
fyrsta lagi vegna þess að frétt-
ir þaðan eru af mjög skornum
skammti, og einnig vegna hins
að fjármálakerfi landsins er
gjörólíkt því, sem við þekkjum.
Svo ólíkt, að margir hafa trú-
að því, að ójafnrétti, verðbólga
og auðsöfnun gæti ekki átt sér
stað þar. Slíkt er misskilningur.
Verðbólga og auðsöfnun hefur
átt sér stað í einu bezt skipu-
lagða þjóðfélagi heimsins. Því
að jafnvel Sovétskipulagið hef-
ur ekki getað afnumið pening-
ana; og alls staðar þar, sem við-
skipti fara fram með peningum,
hagar mannfólkið sér svipað,
hvernig sem þjóðskipulagið er.
Við skulum því reyna að gera
okkur grein fyrir tilraunum
Rússa til að stöðva verðbólguna
og afnema skömmtunina.
Frá 15. til 22. desember
síðastliðinn urðu allir Rússar
að afhenda alla rúbluseðla, sem
þeir áttu í fórum sínum, og
fengu í staðinn eina rúblu fyrir
hverjar tíu, sem þeir afhentu.
Með öðrum orðum: Allir þeir,
sem höfðu safnað peningum en
ekki viljað leggja þá í banka
eða ríkisskuldabréf, urðu að láta
af hendi níu tíundu hluta af
þeim. Þeir, sem áttu innstæður
frá 3000 til 10000 rúblur, fengu
tvær nýjar rúblur fyrir þrjár
gamlar, og þeir, sem áttu yfir
10000 rúblna innstæðu, fengu
eina nýja fyrir tvær gamlar.
Sama máli gegndi um ríkis-
skuldabréf. Þannig urðu þeir,
sem falið höfðu peninga, harð-
ast úti. Þeir, sem minnst áttu,
sluppu alveg.
Ráðstjórnin undirbjó þessar
aðgerðir af mikilli vandvirkni.
Baráttan við verðbólguna, sem
myndaðist á stríðsárunum,
byrjaði strax að stríðinu loknu.
Árið 1945 gat rússneski verka-
maðurinn keypt brauðskammt-
inn sinn fyrir fastákveðið verð,
en fyrir 30 til 40 sinnum hærra
verð gat hann keypt jafnmikið
af brauði á frjálsum markaði á
löglegan hátt. Verðlagið á
frjálsum markaði var breytilegt
og fór eftir því, hve mikið barst
af vörum frá bændunum og
verksmiðjunum. Tilgangurinn
með þessum frjálsa markaði var
að örva framleiðsluna.
Á árinu 1946, þegar ástandið
fór að skána og framleiðslan að
aukast, hóf stjórnin viðleitni
sína til að færa niður vöruverð-
ið. Það gerði hún með þrenns-
konar aðgerðum: hún tvö- og
þrefaldaði verðið á skömmt-
unarvörunum; samtímis hækk-