Úrval - 01.02.1948, Blaðsíða 92
90
TjRVAIi
samrýmast þeim. Ef þær sam-
rýmast þeim ekki, þá verðum
við að virða staðreyndirnar og
viðurkenna, að ályktanir okk-
ar hafi verið rangar. Ég trúi
því, að nauðsynlegt sé að beita
vísindalegum aðferðum til að
öðlast fullkominn skilning á
sjálfum okkur og heiminum, eða
til þess að ná valdi yfir hvoru-
tveggja.
Ég trúi á framfarir jafn-
vel þó að vísindalegum að-
ferðum sé svo hræðilega mis-
hoðið, að við verðum að þola
hörmungar á borð við leiftur-
stríð og kreppur. Ég trúi því, að
með því að nota þessar aðferðir,
muni mennirnir geta ráðið
framtíð sinni. En til þess að svo
geti orðið, þurfum við vissulega
á góðvild að halda. Ég held, að
við höfum raunverulega tekið
og séum að taka framförum í
siðgæði. Fyrir hundrað og
fimmtíu árum hengdum við
börn fyrir að stela einum skild-
ing. í dag gefum við þeim ó-
keypis mjólk, jafnvel þó að hin-
ir ríku verði að vera án hennar,
En ég trúi því, að þekkingin sé
eins mikilvæg og góðvildin, og
að við þörfnumst meiri þekking-
ar, bæði á því, sem enginn veit
skil á enn, og eins hinu, sem
aðeins er á fárra vitorði. Við
þörfnumst meiri virðingar fyrir
sannleikanum. Ef sú virðing
verður til þess, að við neyðumst
til að varpa fyrir borð ýmsum
trúarskoðunum foreldra okkar,
þá trúi ég því, að okkur beri
að varpa þeim fyrir borð. I
stuttu máli: ég trúi á skynsem-
ina, ég trúi á manninn.
CO ★ 03
Grafskrift í Holiywood.
I veizlu í Hollywood léku gestirnir sér að því að skrifa hver
sína eigin grafskrift og lesa hana síðan upphátt fyrir hina gest-
ina. Leikkona, sem var svo marggift, að jafnvei í Hollywood var
íekið til þess, gat ekki fundið handa sér neina grafskrift. Einn
gestanna bauðst þá til að skrifa grafskriftina fyrir hana, og þeg-
ar hún fékk miðann stóð á honum: „Loksins sefur hún ein.“
— Verden IDAG.