Úrval - 01.02.1948, Side 132
„Ein staðreynd nœr allt til enda
veraldar.“ — Robert Browning.
jff
Gagnsla us fróðleikur.
Úr „The Strand,“
I fyrsta og eina skiptið, sem
múlasnar hafa verið notaðir í
heimskautaleiðangra, var í leið-
angrinum til björgunar Scott og
félögum hans á Suðurheimskauts-
svæðinu. Það var árið 1904 og
fundu leiðangursmenn Scott og
félaga hans örenda. • Á eynni
Ceylon eru framin tiltölulega flest
morð í heiminum, en sjálfsmorð í
borginni Bogota i Ameríku.
® Hundar, einkum veiðihundar,
draga að jafnaði dám af hús-
bændum sínum; gáskafullum hús-
bændum fylgja gáskafullir hund-
ar, önuglyndum húsbændum fylgja
geðillir hundar og vanstilltum
húsbændum fylgja vanstilltir
hundar. ® Mjaltakonan situr allt-
af hægra megin við kúna, þegar
hún mjólkar; ástæðan er sú, að
með því móti á hún hægra með
að bjarga mjólkurfötunni undan,
ef kýrin sparkar. • Hérar og
kóngulær forða sér alltaf upp i
móti, ef hægt er, þegar þau verða
fyrir styggð. • Byssukúla fellur
um 30 sm á 40 metra vegalengd;
það ættu veiðimenn að hafa í
huga, þegar þeir skjóta á löngu
færi. • Alpafjöllin eru á vestur-
leið; þau mjakast um nokkra
þumlunga á hverri öld. • Fyrsti
almenningsdýragarðurinn, sem
stofnaður var, var opnaður í
Amsterdam 1751. • Orðatiltækið
„hin konunglega stjórnarand-
staða“ var fyrst notað árið 1831
af enska þingmanninum og ráð-
herranum Hobhouse. • Aðeins
fjórði hlutinn af yfirborði jarðar er
þurrlendi. • Allir íbúar jarðarinn-
ar (um 2 174 000 000) myndu geta
staðið hlið við hlið á eynni
Wight í Ermarsundi; hún er 378
km’ að stærð. • Dæmi eru til
þess að hinn svonefndi „sæbrodd-
göltur,“ en það er fisktegund,
hafi étið sig í gegnum hákarl, sem
gleipti hann. • Efniviðurinn í
pýramiðanum mikla mundi nægja
til að reisa fjögra feta háan, eins
fets þykkan og 6500 km langan
vegg. • Augun í drekaflugunni
eru eins stór og í músinni.
• Erkibiskupinn af Kantaraborg
getur gefið leyfi til að stunda
lækningar. • 38% af yfirborði
Hollands er lægra en yfirborð
Framhald á 3. kápusiðu.
STEINDQRSPRENT H.F.