Úrval - 01.10.1952, Page 17

Úrval - 01.10.1952, Page 17
HVAÐ VITUM VIÐ UM KRABBAMEIN? 15 Ef krabbameinið er ekki skor- ið burt á byrjunarstigi, geta agnir úr því losnað og borizt með blóðinu til fjarlægra líkams- hluta, þar sem frumurnar halda áfram að skipta sér og mynda ný æxli. Allar krabbameinsfrum- ur í líkamanum eru afkvæmi fyrstu krabbameinsfrumanna, og þær hætta aldrei að skipta sér. Krabbameinsfrumur geta verið komnar út um allan lík- amann án þess sjúklingurinn kenni verulega til veikinda, ef þær hafa ekki setzt að í ein- hverju mikilvægu líffæri og truflað starfsemi þess. Brýnasta viðf angsefni krabba- meinsrannsóknanna er að kom- ast að því, hvað komi af stað og viðhaldi þessari óheftu frumuskiptingu. Það er miklu hægara að finna hvað kemur frumuskiptingunni af stað held- ur en hvað viðheldur henni, jafnvel eftir að orsökin hefur verið upprætt. Jafnvel þegar á átjándu öld vissu menn að snerting við á- kveðin efni gat valdið krabba- meini. Við vitum nú um mikinn fjölda slíkra efna. Meðal þeirra er sót, koltjara, anilínolía, ýmis flúorsambönd, sum litarefni og sumir hormónar. Ýmislegt annað getur einnig valdið krabbameini, t.d. röntgen- geislar, radíum, endurtekin brunasár á hörundi og útfjólu- bláir geislar. Krabbameinsvaldamir — „frumorsökin“ — hafa eitt sam- eiginlegt: þeir valda lítilsháttar skemmdum á frumunum án þess að eyðileggja þær. Hugsanlegt er, að þessi smávægilega skemmd opni leið einhverju öðru — ,,vaxtarorsökinni“ — sem getur beitt sín inni í frum- unni, skiptzt með henni og hald- ið áfram að örva hinar nýju frumur til að skiptast. Þetta „eitthvað“ getur verið utanaðkomandi efni eða breyt- ing í frumunni sjálfri. Margir eru enn þeirrar skoðunar að krabbameinið sé illkynjuð breyt- ing í frumunni sjálfri. En áður en við sættum okkur við svo von- laust ástand skulum við athuga viss atriði sem gefa betri vonir um árangur. Það er augljóst, að frumorsök húðæxlis (t. d. sólbrani) getur ekki verið að verki í æxlum sem eru útsæði frá húðæxlinu. Þetta má auðveldlega sýna fram á með dýratilraunum þar sem æxli er hægt að flytja frá dýri til dýrs með ágræðslu eins oft og vera vill. Óhugsandi er að frumorsökin sé þar að verki. En árið 1911 uppgötvaði dr. Peyton Rous, starfsmaður við Rockefellerstofnunina, að vissar tegundir æxla í kjúklingum myndast fyrir áhrif víruss, hinna örsmáu lífvera sem að- eins eru sýnilegar í rafsjá. Vír- usið lifir og margfaldast í frum- unum og örvar þær til skipting- ar. Það er hin eiginlega „vaxtar- orsök“ þessara æxla, því að það finnst alltaf í þeim öllum og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.