Úrval - 01.02.1956, Blaðsíða 47
,,I>eir erii veglansir eftirlifeiulur
tapaðrar orustu: omstu lífsins".
Tötramenn Parísar.
Grein úr „The Listener",
eftir Pierre Schneider.
Tötramennirnir — eða clochards eins og Parísarbúar kalla
pá — eru svartur blettur á hinni miklu heimsborg. Veturinn
1953 urðu þessir hrakhólamenn fréttaefni heimsblaðanna, þegar
miklir og langvarandi kuldar gengu yfir Fraklcland og þeir
frusu % hel unnvörpum. —• I eftirfarandi grein lýsir höfundur
ástœðum þessarar ógœfumanna og viðhorfi borgarbtía til þeirra
og gerir jafnframt tilraun til að skýra þetta ömurlega þjóð-
félagsfyrirbceri.
EIR staulast um götur Par-
ísar, skeggjaðir, tötralegir,
óhreinir og sljóir, eins og liðs-
menn úr tvístruðum her. Þeir
fylgjast að tveir og tveir, sam-
eina veika krafta sína til að
halda hvor öðrum á fótunum,
eða rangla um einir og styðja
sig við veggi eða Ijósastaura.
Oftar má sjá þá sofandi, á öll-
um tímum sólarhringsins, á
bekkjum, undir brúm, á dyra-
þrepum, á auðum lóðum eða
blátt áfram á gangstéttunum.
Þegar kalt er hjúfra þeir sig á
ristunum yfir loftgötum neðan-
jarðarlestanna — þessum
vermireitum umrenninganna.
í klæðaburði fylgja þeir að-
eins einni meginreglu: að klæð-
ast eins miklu og þeir geta, með
þeim árangri, að þeir líta oft út
eins og gangandi klæðasafn;
getur þar að líta hinar furðuleg-
ustu flíkur: loðskinnshúfur sem
teknar voru af kósökkum í
Napóleonsstyrjöldinni 1815,
tartaraleggstigvél sem tekin
voru úr birgðum prússneska
hersins 1870 og þaðan af yngri
flíkur. Undir þessu fjölbreyti-
lega klæðasafni, sem er því lík-
ast að það hafi verið hirt af
föllnum félögum við þjóðveginn,
hverfa næstum öll mannleg
form. En hversu sundurleit sem
fötin eru, þá eru þau einkennis-
búningur, því að á baki sér bera
þau öll stimpil fátæktarinnar.
Allar jarðneskar eigur sínar —
sem jafnan eru fengnar úr sorp-
ílátum — hafa þeir látið í poka
eða ónýtan barnavagn, sem þeir
skilja aldrei við sig. Af þessum
einkennum eru þeir jafnauð-
þekktir og einkennisbúnir her-
menn, skólabörn, lögreglumenn
eða nunnur; þetta er tötralýður
Parísar, sem borgarbúar hafa
gefið samheitið clochards.