Úrval - 01.02.1956, Blaðsíða 81
GLENS OG GAMAN UM NÓBELSVERÐLAUNAHÖFUNDA
79
afhendinguna hafi Sinclair
Lewis hrósað konunginum fyrir
að hann skyldi geta haldið sér
vakandi þá tvo tíma sem hin
hátíðlega athöfn stóð yfir í
Hljómleikahöllinni. Og Lewis
bætti við: „Ég var nær dauða
en lífi af löngun í snaps. Voruð
þér það ekki líka?“
f veizlunni, sem konungur
heldur alltaf í höll sinni að
lokinni verðlaunaafhendingu,
reyndi Lewis að kveikja sér í
sígarettu undir borðum, til þess
að reyna að hafa hemil á óstýri-
látri lífsgleði sinni. Þetta var
brot á siðareglunum við hirðina.
Orðum prýddur kammerherra
reyndi kurteislega en einbeittur
að koma í veg fyrir þetta. Lewis
leit framan í hann og horfði
síðan niður eftir skrautlegu
brjóstinu og þriflegum magan-
um. Svo sagði hann hátt og
skýrt: „Alfred Nóbel sagði
einu sinni, að sænsku orðuna
Norðurstjörnuna ætti hann að
þakka matsveini, sem naut álits
hjá háttsettum manni, og að
franskt heiðursmerki hefði hann
fengið af því að hann var kunn-
ugur frönskum ráðherra. Góði
maður,“ bætti Lewis við og
klappaði kammerherranum á
magann, „segir mér, hverskonar
súpu eigið þér að þakka orður
yðar?“
Hámarki náði fagnaðarhátíð-
in hjá Lewis nokkrum dögum
síðar, þegar hann vaknaði
snemma morguns í rúmi sínu
á Grand Hotel, við það að Lúcía
með logandi kertaljós í hárinu
kom inn í herbergið til hans. Þá
var Lewis sannfærður um, að
hann væri kominn með delerium
tremens.
Aðeins einu sinni hefur það
komið fyrir, að verðlaunin hafa
verið afhent öðrum en þeim,
sem akademían hafði tilnefnt.
Það var þegar hann aldni kon-
ungur Gústaf 5., sem var nær-
sýnn, afhenti þau kammerherra
nokkrum, sem stóð nærri, í stað
hins kjörna verðlaunahafa.
Fákunnátta!
Sex ára snáði var i bíó með afa sínum. Myndin var ítölsk
og ástríðurnar heitar. Hetjan kyssti ástmey sína, fyrst á
höndina, svo á olnbogann, öxlina, hálsinn og eyrað.
Þá gat sá litli ekki lengur orða bundizt. Hann fór að skelli-
hlæja og sagði: „Sjáðu, sjáðu, afi! Hann veit ekki hvar hann
á að kyssa hana!"
— English Digest.
★
Aldrei er eins mikið logið eins og eftir veiðitúr, í styrjöld
og á undan kosningum.
— Bismarck.