Úrval - 01.02.1956, Síða 60
58
ÚRVAL,
menn). (6) Ástandið á þeim
landssvæðum, sem ætluð eru
innbornum mönnum eingöngu,
er „gott".
Helzt kysi stjórnin, að inn-
bomir menn héldu sig á þeim
landssvæðum, sem þeim eru ætl-
uð, í einangrun. En til iðnaðar
og námureksturs þarf ódýrt
vinnuafl og þetta tvennt getur
ekki samrýmzt. Þróunin hlýtur
óumflýjanlega að stefna í þá
átt, að þeldökkum mönnum í
vellaunuðum störfum í iðnað-
inum fjölgi, ef iðnaðurinn á
að lifa og þróast. Af þessu leið-
ir, að kaupgeta þeldökkra
manna vex, og í kjölfar hennar
mun koma krafa um meiri
menntun og meiri pólitísk rétt-
indi.
I kjölfar vaxandi iðnvæðingar
hlýtur m. ö. o. að koma vaxandi
hætta á kynþáttaárekstrum,
en þeir munu að sínu leyti
knýja stjórnina til æ gerræðis-
legri ráðstafana. Ekkert ríki,
sem telur 13,5 milljónir íbúa,
getur staðizt, ef 10 milljónum
íbúanna er meinað að taka þátt
í athafnalífi þjóðarinnar.
Bretar vonast eftir að geta
haldið sínu, hvað sem tautar.
Um 90% af allri fjárfestingu
í landinu er í höndum þeirra,
enda eru þeir að heita má alls
ráðandi í verzlun, fésýslu og
námurekstri. Þegar ég spurði
brezkan Natalbúa hvort Búar
myndu ekki gleypa allt í héraði
hans er fram liðu stundir, svar-
aði hann og hnusaði fyrirlitlega:
„Hafið þér nokkurntíma heyrt,
að köttur hafi,,gleypt“bolabít?“
Hvað sem því líður, er það
staðreynd, að stöðugt er verið
að bola brezkum mönnum úr
opinberum ábyrgðarstöðum, og
að stjórnmálalega standa þeir
höllum fæti. Ef maður af brezk-
um ættum situr enn í ábyrgðar-
stöðu, t. d. hjá ríkisjámbraut-
unum, eða annarri svipaðri
stöðu, getur hann verið viss um,
að hann mun ekki kemba hær-
urnar í því embætti. Ég heyrði
einn kunnasta námustjóralands-
ins segja áhyggjufullan: „Héð-
an í frá verður aldrei önnur en
„hollenzk“ stjórn í þessu landi."
Að nokkru leyti er þetta Bret-
um sjálfum að kenna. Þeir voru
of önnum kafnir að græða pen-
inga, og létu Búum eftir stjórn-
málin. Nú gjalda þeir þessarar
glópsku sinnar. Sambandið við
Suðurafríku er Bretlandi mjög
þýðingarmikið. Hún kaupir mik-
ið af allskonar útflutningsvörum
Breta ogþaðanfáBretarnæstum
allt gull sitt. Fjárfesting Breta
í Suðurafríku eftir síðari heims-
styrjöldina hefur verið geysileg,
líklega um 16 milljarðar króna.
Vegna sjóleiðarinnar suður fyr-
ir Góðrarvonarhöfða, hefur
landið talsverða hernaðarlega
þýðingu, og flotastöðin í Sim-
onstown er mikilvæg fyrir það
sem einu sinni var nefnt „varnir
heimsveldisins“. Frá öllum sjón-
armiðum er Bretum mikið hags-
munamál að hafa góða sambúð
við Suðurafríku.