Úrval - 01.02.1956, Page 62

Úrval - 01.02.1956, Page 62
Príns frá Afríku sejjir frá siðum og- venjum í landi sinu. Kvennabúr föður míns. Grein úr „The Digest of World Reading“, eftir Okechukwu Xkejiani, prins. FAÐIR minn, konungurinn, á sextán tryggar konur. Ég er einn þrjátíu og sex bama hans. Það er ekki vegna þess að hann er erfðakóngur, að hann heldur kvennabúr. Hitt er sönnu nær, að sú staðreynd, að hann á margar konur, á drjúg- an þátt í því að hann er virtur þjóðhöfðingi í landi, sem brátt mun öðlast fullt sjálfstæði. Þetta land er Nígería. Við von- umst til þess að fá fullt sjálf- stæði innan tveggja áraogverða um leið frjálsir aðilar að brezka samveldinu. Okkur Nígeríu- mönnum er vel Ijóst, að þegar við tökum sæti á bekk með frjálsum þjóðum, erum við lítt kunnir umheiminum sem þjóð og siðir okkar næsta framand- legir í augum hans. Væri Nígería lítið, afskekkt land, mundu aðrar þjóðir lítinn gaum gefa skipan þjóðfélags- mála okkar. En íbúar Nígeríu eru helmingi fleiri en íbúar Kan- ada og landið þrisvar sinnum stærra en Bretlandseyjar; hin mörg hundruð mílna langa strandlengja þess liggur að At- lantshafi, hinni miklu þjóðbraut vestrænnar menningar. Nígerar eru með elztu þjóð- um. Lög okkar og siðir eru af- sprengi ævafornrar menningar. Til samanburðar má geta þess, að menning hins svonefnda Salómonstímabils, sem menning okkar er oft sett í samband við, er 3000 ára gömul. Fyrstu endurminningar mín- ar eru frá þeim tíma þegar ég lifði í samfélagi, sem girt var háum múrum; innan þessara múra voru mörg hús, fjöldi barna á mínum aldri er voru leiksystkini mín og margt full- orðinna, sem annað hvort gerðu það sem við báðum það um, eða sögðu okkur hvað við ættum að gera. Eini munurinn á þessu lífi mínu og venjulegs bams var sá, að öll börnin vom systkini mín og fullorðna fólkið annað hvort eiginkonur f öður míns eða þjónustulið, og að þetta múr- umgirta samfélag var eign hans: hirð hans og fjölskylda. Þetta samfélag var lítil borg fyrir sig. Fyrir innan stóra hlið- ið var einkahöll föður míns, þar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.