Úrval - 01.02.1956, Síða 85
GRETA GARBO
83
1 atigum Gretu Garbo er k\ik-
myndaleikkonan sérstök persóna,
sem á hvergi heima nema á kvik-
myndatjaldinu. Hún horfir á sjálfa
sig í kvikmyndum á svipaðan hátt
og maður virðir fyrir sér góðan vin.
Þegar hana langar til að endurnýja
kunningsskapinn, leggur hún leið
sína i Listasafn New York borgar,
sem á mikið kvikmyndasafn, og horf-
ir á einhverja mynd sína á einka-
sýningu. Meðan á sýningunni stend-
ur, er hún í essinu sínu, kát og
glöð, en þegar myndinni er lokið,
verður hún aftur fálát og hugsandi.
Hún brettir upp kápukragann, þrýst-
ir hettunni niður í augu og skundar
út úr safninu án þess að líta til
hægri eða vinstri — hverfur aftur
út í ys og þys þess heims, sem er
henni óraunverulegri en veröld kvik-
myndanna.
1 meira en aldarfjórðung hafa að-
dáendur Gretu Garbo. keppzt við að
lýsa töfrum hennar í sem hástemmd-
ustum orðum. Hún hefur verið köll-
uð ,,hin guðdómlega" á mörgum
tungumálum og fjölda mállýzka. Þó
að hún sé nú orðin fjörutíu og níu
ára gömul, hefur ekkert dregið úr
aðdáun manna á þessari leikkonu
og lofsöngnum um hana ekki linnt.
Það er eins og aldurinn skipti engu
máli.
En hvað s\o sem sagt er um Gretu
Garbo, þá verður því ekki neitað,
að hún er sígilt tákn kvenlegrar
fegurðar á vorum dögum. Aðrar
konur kunna að vera enn fegurri,
— mestu aðdáendur Gretu Garbo
bera jafnvel ekki á móti því, — en
þrátt fyrir það hefur hún hlotið
drottningartitilinn. Um pað verður
ekki deilt.
Greta Garbo hefur sennilega haft
meiri áhrif á útlit og klæðaburð
kvenna nú á timum en nokkur önnur
manneskja. Hið klassiska andlitsfall
hennar tók að birtast í tízkublöðum
og jafnvel fatabrúöur í búðarglugg-
um tóku að líkjast henni í útliti.
Það var fyrir áhrif frá henni, að
konur fóru að ganga i síðbuxum, á
lághælaskóm og með barðastóra
hatta, sem skyggja á andlitið. Fas
og limaburður Gretu var líka stælt
—• hinar hægu, mjúku hreyfingar
og þunglyndislegi tíguleiki. En stæl-
ingarnar urðu aldrei nema svipur
hjá sjón, því að það getur engin
verið Greta Garbo nema hún sjálf.
Greta Garbo á ekki heldur neinn
sinn líka sem leikkona. Eftir að hún
hætti að ieika i k\ikmyndum hefur
engin komið í hennar stað. „Hún var
alveg einstök, það var engin henni
iik," sagði Lewis Stone, sem lék
með henni í Kristími Svíadrottningu.
„Hún var Greta Garbo — það var
allt og sumt. Enginn leikari hefur
haft slíka áhrif."
Greta Garbo hætti að leika hálf-
fertug, þegar hún stóð á tindi
frægðar sinnar. Hún hafði leikið
sem „stjarna" í fimmtán ár, en það
er helmingi lengri timi en ævi kvik-
myndaleikkonunnar telst i Holly-
wood. Eftir að hún hætti að leika,
árið 1941, hefur hún hafnað hundr-
uðum tilboða um hlutverk í kvik-
myndum. Hún vill heldur njóta
frægðarinnar, sem hún hefur þegar
áunnið sér.
Meðan Greta Garbo var og hét