Úrval - 01.02.1956, Page 98
96
ÍTRVAL.
a8 að taka myndina en. orðasveimur
komst á kreik um samdrátt milli
Gilberts og Gretu.
John Gilbert var mikið glæsimenni.
Hann hafði hrafnsvart hár, dökk,
leiftrandi augu og mjallhvítar tenn-
ur. Hann var án efa vinsælasti leik-
ari þöglu kvikmyndanna. Árið 1926,
þegar hann kynntist Gretu Garbo,
hafði hann tíu þúsund dollara iaun
á viku hjá M-G-M.
Það er enginn vafi á þvi, að Gil-
bert hefur strax orðið ástfanginn af
hinni ungu leikkonu. Og á hinn bóg-
inn er jafnvíst, að Greta, sem hafði
svo lengi haft hinn mislynda og
kröfuharða leikstjóra að félaga, hef-
ur ekki verið ósnortin af glæsi-
mennsku Gilberts. Enda mátti sjá
þess merki, að henni var ástleitni
hans ekki á móti skapi, þó að hún
vildi ekki rasa um ráð fram. Hún
var ung kona og óreynd í ásta-
málum.
Þegar lokið var við að kvikmynda
Flesh and the Devil, bar Gilbert
upp bónorð sitt við Gretu Garbo —
og ekki í síðasta skiptið. Hann fékk
hryggbrot og lagði samstundis af
stað til New York í leyfi. Þar var
hann spurður um samband þeirra
Gretu, því að málið hafði vakið mikla
athygli meðal almennings. „Greta er
yndisleg stúlka," sagði Gilbert við
blaðamennina. ,,Við erum aðeinsgóðir
vinir." Ástin virtist vera kulnuð í
bili, en þó lifði lengi í glæðunum.
Flesh and the Devil varð afar vin-
sæl kvikmynd, og var það ekki sizt
að þakka ástaratriðum myndarinnar.
Gagnrýnendur báru engu minna lof
á Gretu en Gilbert. Hún var nú búin
að geta sér frægð og komin í tölu
„stjarnanna“. Næsta mynd, sem
Greta átti að leika í, hét Konur elska
demanta, en henni þótti myndin svo
ómerkileg, að hún neitaði að fara
með hlutverkið. Hún tilkynnti M-G-M,
að hún vildi ekki leika „spilltar kon-
ur“ oftar.
En neitun hennar byggðist ekki
á þessari ástæðu einni saman. Stiller
hafði ráðlagt henni að neita að leika
i fleiri kvikmyndum, nema hún fengi
verulega launahækkun. Samkvæmt
samningnum, sem hún hafði gert
þegar hún kom til Ameríku, fékk
hún sex hundruð dollara á viku,
en það þótti henni — og einkum
Stiller — óviðunandi, ekki sízt með
tilliti til þess að mótleikari hennar,
John Gilbert, fékk tíu þúsund dollara
á viku.
I nóvember 1926 bað Louis B.
Mayer Gretu að koma á sinn fund
og ræða málið. Þegar hann spurði
hana, hve mikið hún vildi fá á viku,
svaraði hún: „Fimm þúsund dollara.”
Einhver hefur sagt, að það hafi
kannske verið tilviljun, að jarðhrær-
inga varð vart i Hollywood um
sama leyti og Greta nefndi þessa
upphæð. Mayer sagði, að ekki kæmi
til mála að borga henni fimm þús-
und dollara, þar eð hún hefði ekki
starfað hjá félaginu nema í eitt ár.
Greta svaraði því til, að hún mundl
ekki leika hjá félaginu fyrr en geng-
ið hefði verið að kröfum hennar.
Hún steig ekki fæti í kvikmynda-
verið í sjö mánuði, þrátt fyrir blíð-
mæli og hótanir forráðamanna
M-G-M. Félagið hætti að greiða
henni laun í refsingarskyni, og setti