Úrval - 01.02.1956, Side 100

Úrval - 01.02.1956, Side 100
98 ÚRVAL ar um hina miklu leikkonu. Ekki þótti þó nafnið nógu gott á mynd- inni og var hún því köiluð The Divine Woman (Guðleg kona). Stiller var nú farinn aftur heim til Svíþjóðar. Hann þjáðist af lungna- sjúkdómi og gekk auk þess með blóðsjúkdóm, sem reyndist ólækn- andi. Stiller andaðist 8. nóvember 1928, -15 ára gamall. Victor Sjöström, gam- all samstarfsmaður hans, sendi Gretu Garbo skeyti og tilkynnti henni and- iát Stillers. Hún fékk skeytið í hend- ur þegar hún var að leika atriði í Wild Orchids. ,,Hún varð náföl," sagði maður sem var viðstaddur. ,,Ég helt að það ætlaði að líða yfir hana. Hún gekk hægum skrefum frá okkur, eins og hún væri í leiðslu. Hún hallaði sér upp að veggnum og stóð þar lengi og byrgði andlitið' með höndunum. Siðan kom hún aftur til okkar og hélt áfram að leika. Hún sagði engum frá því sem stóð í skeytinu." Menn hafa aldrei orðið á eitt sáttir um það, hvort Stiller og Greta Garbo hafi verið ástfangin hvort af öðru. Hitt er á allra vitorði, að hún mat hann mikils. Eftir dauða hans hefur hún stöðugt verið að leita að manni, sem gæti orðið henni sú stoð og stytta sem Mauritz Stiller var meðan hans naut við. Þegar Greta var orðin ein sins liðs, tók hún saman föggur sínar og flutti frá Miramarhótelinu, þar sem svo margt minnti hana á Stiller. Hún sökkti sér niður í starf sitt og hugsaði ekki um annað en það, en þó fór því fjarri, að það fullnægði henni. Hún var orðin leið á að leika konu, sem dregur menn á tálar og hrindir þeim í ógæfu. Um þessar mundir var verið að taka myndina The Single Standard og var sagt í auglýsingu um þá mynd, að þar kæmi Greta Garbo fyrst fram i alamerísku hlutverki. Dag nokkurn fékk Greta óvænta frétt: John Gilbert hafði kvænzt leik- konunni Ina Claire. Blaðamaður einn spurði Gretu hvernig henni félli fréttin. ,,Ég vona að Gilbert verði hamingjusamur," sagði hún og gekk burt. Vegna þess að Greta neitaði að ræða frekar um giftingu Johns Gil- berts, voru öll blöð full af bollalegg- ingum um tilfinningar hennar. Sumir sögðu að Gilbert hefði svikið hana og væri hún svo eyðilögð, að hún hefði í hyggju að hætta að leika f kvikmyndum og halda heim til Sví- þjóðar. Aðrir sögðu að Gilbert hefði hótað að drepa þau bæði, ef hún gengi ekki að eiga hann. Hann hefði fengið hryggbrot og síðan gifzt Claire í fússi. En þeir, sem bezt þekktu til, voru þeirrar skoðunar að gifting Gilberts hefði ekki verið mikið áfall fyrir Gretu, hún hefði aðeins verið hrifin af honum í hálfan mánuð, en hann bæri hinsvegar sama hug til hennar enn. Ummæli Gilbers sjálfs styðja þessa skoðun. Hann komst nokkrum árum seinna svo að orði, í samtali við eina af vinkonum sínum: ,,Margir karlmenn iifa og deyja án þess að hafa kynnzt hinni einu sönnu ást. Svo er guði fyrir þakkandi, að ég
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.