Úrval - 01.02.1956, Side 101

Úrval - 01.02.1956, Side 101
GRETA GARBO 99 er ekki einn af þeim. Það hefur ekki liðið sá dagur síðan leiðir okkar Flicku (gælunafn hans á Gretu Gar- bo) skildust, að ég hafi ekki sakn- að hennar. Og ég hugsa að hún hafi borið sama hug til mín.“ Þegar umtalið um hjúskap Gil- berts stóð sem hæst, afréð Greta að draga sig eins mikið í hlé og henni væri unnt. Hún keypti sér einbýlis- hús á rólegum. stað og réði til sín ung, sænsk hjón til að annast heim- ilisstörfin. ,,Weltselimerz“. Þegar Greta hafði lokið dagsverki sinu í kvikmyndaverinu, flýtti hún sér jafnan heim og hélt þar oftast .kyrru fyrir. Þetta varð til þess að umtalið um hana jókst um allan helming. Hún var kölluð „Leyndar- dómur Hollywood nr. 1“, „Norræni Sfinxinn" o. s. frv. Blöð og tímarit birtu fjölda af greinum um hana og lifnaðarhætti hennar. Einn greinar- höfundurinn skrifaði m. a.: „Það er ekkert dularfullt í fari hennar, nema ef vera skyldi hinn leyndardómsfulli ■og óbærilegi sársauki, sem býr í hugarfylgsnum hverrar manneskju _ . . Hún er undir sömu örlögum og Chopin; hin slavneska móðir hans kallaði þau zoll og Þjóðverjar nefna þau weltschmerz — heimshryggð." Helzta dægradvöl Gretu Garbo í einverunni var að synda í sundlaug- inni sinni, liggja í sólbaði, fara í gönguferðir eða á hestbak. Á sunnu- dögum fór hún venjulega í kvik- myndahús, en oft fór hún þá til næstu borga, þar sem minni hætta var á að liún þekktist. Hún sá oft myndir sínar tvisvar eða þrisv'ar, en með nokkru millibili. Skap Gretu, eins og flestra Svía, var mjög háð veðurfarinu. Hún var vön köldu og röku loftslagi, og átti því erfitt með að þola þurrkana í Kaliforníu. Oft för hún út í garð- inn og lét úðann úr garðslöngunni leika um sig unz hún var orðin hold- vot. Stundum var hún I baðfötum, en oftast fullklædd. Þar sem holdafar Gretu virtist ekki fara neitt eftir mataræðinu, gat hún látið eftir sér að borða sað- saman, sænskan mat, sem hún var hrifnust af. Hún borðaði yfirleitt alltaf heima og var ekkert sérvitur hvað mataræðið snerti. Greta Garbo talar. Kringum 1930 var Greta Garbo orðin viðurkennd drottning kvik- myndaheimsins. Um sama leyti fór allt á annan endann í Hollywood vegna tilkomu talmyndanna. Frægir og vinsælir leikarar hurfu af svið- inu vegna þess að rödd þeirra full- nægði ekki kröfum talmyndanna. Baráttan var hörð, jafnvel fyrir leik- ara, sem áttu enskuna að móðurmáli. Erlendir leikarar eins og Pola Negri og Emil Jannings og fjöldi annarra gáfust upp og hurfu frá Hollywood.. Þegar svo var komið, hafði fólk eðlilega mikinn áhuga á að fá úr þvi skorið, hver yrðu örlög hinn- ar sænsku kvikmyndadrottningar. Hvernig myndi henni takast, þegar hún færi að talá í myndum sínum ? Hvorki Greta Garbo né M-G-M
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.