Úrval - 01.10.1958, Blaðsíða 11

Úrval - 01.10.1958, Blaðsíða 11
1 SÁLUFÉLAGI VIÐ PRIESTLEY nokkur bók sem ég hafði lesið. Draumsviðið var ósköp einfalt og mátti sennilega rekja til þess að skömmu áður hafði konan mín farið upp í vitann í St. Cat- herine til þess að athuga fugla. Mig dreymdi að ég stæði einn efst í geysiháum turni og horfði niður á mergð fugla sem flugu allir í sömu átt. Það voru allar tegundir fugla sem til voru í heiminum. Það var fög- ur sjón að horfa á þennan fuglastraum. En skyndilega varð einhver dularfull breyting á flughraðanum, tíminn tók á rás, þannig að ég sá kynslóðir fugla, horfði á þá brjóta skurn- ið, hefja flug sitt út í lífið, eðla sig og eldast, sá þeim daprast flugið og deyja. Vængir uxu aðeins til þess að visna, líkam- ir lyftust til flugs og klufu loftið spengilegir, en í næstu andrá lagaði úr þeim blóð og þeir hnigu til jarðar; sigð dauðans var sífellt og allsstað- ar að verki. Til hvers var öll þessi blinda barátta fyrir líf- inu, þessi brennandi þrá til að prófa vængina, þessi skyndi- eðlun, þetta flug, öll þessi til- gangslausa áreynsla? Þegar ég leit niður og mér fannst sem ég sæi hið auðvirðilega æviskeið hvers smáfugls sem í sjón- hendingu, varð ég gripinn sár- um trega. Væri ekki betra að enginn þeirra, ekkert okkar hefði fæðzt, að baráttunni væri að fullu lokið? Ég stóð í turni mínum, aleinn, gripinn sárri ör-. ÚRVAL væntingu. En nú breyttist hrað- inn enn, tíminn geystist áfram með slíkum ofsahraða, að ekki sást nein hreyfing á fuglunum, heldur voru þeir eins og enda- laus slétta vaxin fiðri. En um þessa sléttu fór nú einskonar hvítur logi, sem geystist áfram flögrandi og dansandi; og um leið og ég sá þennan hvíta loga vissi ég að hann var lífið sjálft, sjálfur kjarni alls sem lifir. Og í sömu andrá laust því niður í mig eins og eldingu, að ekkert skipti neinu máli, nú eða nokk- urn tíma, nema þessi titrandi, hraðfleygi lífslogi. Fuglar, menn, skepnur, sem enn höfðu ekki fengið lögun eða lit, ekkert þeirra var nokkurs virði nema á þeirri stundu þegar þessi lífs- logi fór í gegnum þau. Það var ekki neitt að syrgja; það sem mér hafði fundizt vera harm- leikur, var aðeins tóm eða skuggamynd; því að í þessum lífsloga skírðist nú öll sönn til- finning og dansaði áfram með honum. Ég hafði aldrei komizt í kynni við þvílíka alsælu og í lok þessa draums um turninn og fuglana, og hafi ég ekki varðveitt þessa sælu innra með mér eins og helgireit í hjarta mínu, þá er það af því að ég er veikgeðja fáráðlingur sem leyfir brjáluðum heimi að ryðj- ast inn og troða undir fótum hverja græna vísdómsnál sem skýtur upp kollinum. Samt sem áður hef ég ekki verið sami maður síðan. 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.