Úrval - 01.10.1958, Blaðsíða 16
Tilraunir með gerviskynfœri.
Grein úr „The New Scientist",
eftir Pierre de Latil.
Greincirhöfundur, sem er ritstjóri vísindadálks franska blaðsins
„Le Figaro Litteraire,“ skýrir frá því, að með því að koma fyrir
spanspólu í kjálkavöðva algerlega heyrnarlauss manns hafi tekizt
að láta hann greina töluð orð, og að hann hafi einnig orðið fyrstur
manna til að heyra hátíðnihljóð. Er hœgt að búa til önnur gervi-
skynfœri ? spyr höfundur.
"C’INN helzti kostur æðri dýra
er hæfileiki þeirra til að
skynja umhverfi sitt. Skynfær-
in svara ytra reiti (stimuli) og
breyta því í merki sem taug-
amar flytja síðan heilanum.
Þessi merki eru almennt talin
raf-efnafræðilegs eðlis. Mörg
rafeindatæki hafa verið búin til,
sem gegna svipuðu hlutverki og
skynfærin: þau breyta ein-
hverjum ytri áhrifum, svo sem
breytingum á þrýstingi eða hita,
í rafstraumsmerki. Hljóðnemi
breytir t. d. hinum breytilega
þrýstingi frá hljóðbylgjum í
breytilegan rafstraum.
Ef hér er, svo sem virðist,
um algera hliðstæðu að ræða,
ætti þá ekki að vera hægt að
búa til gerviskynfæri, er komið
gætu í stað skynfæra, sem hafa
eyðilagzt ?
Þessi fræðilegi möguleiki er
nú að verða að veruleika. Það
er ekki einasta að fjöldi til-
rauna hafi með góðum árangri
verið gerður á dýrum í vísinda-
stofnun í París, heldur hefur
það sem kalla mætti „rafeinda-
eyra“ verið sett í algerlega
heyrnarlausan mann.
Hingað til hefur vísindamönn-
um einungis tekizt að erta taug-
ar beint með rafstraum — eins
og þegar Galvani erti taugina
í legg frosksins — þegar þær
voru beraðar með skurðaðgerð.
Tilraunir hafa verið gerðar með
að tengja málmþráð við taug í
sári og erta hana síðan með
rafstraum eftir að sárið var
gróið, en annað hvort hefur í-
gerð myndast kringum þráðinn
eða vefirnir hafa losað sig við
hann.
André Djourno, prófessor í
lífeðlisfræði við La Faculté de
Medicine í París, hugkvæmdist
að erta taug með lítilli span-
spólu (induction coil) sem kom-
ið var fyrir innan í vef og tengd
við taugina. Þar eð lifandi vef-
ur veitir segulsviði enga mót-
\
14