Úrval - 01.10.1958, Page 45

Úrval - 01.10.1958, Page 45
AFRlKUDAGAR tTRVAL nuddast hefur djúpt inn í húð- ina, en að lokum tekst það og það stirnir á unga líkamina, sem makaðir eru í rauðum lit og feiti; en þau „fegrunarlyf“ eru í mestum hávegum höfð hjá Óvambó-stúlkunum og að- dáendum þeirra. Brúðguminn færir nú tengda- móður sinni hina venjulegu gjöf — uxa, sem jafnskjótt er slátrað þar á staðnum. Að því búnu má hann fara heim með brúði sína og hreykinn ber hann henni heimanmundinn: kjóla úr fagurlega litum skinn- um og kýrvömbum, suðuáhöld og körfur, að ógleymdum akur- grefli, sem sízt af öllu má án vera! Unga konan fær nú bústað út af fyrir sig og sérstakan jarðarskika, sem hún verður að annast upp frá því. Á hana er litið sem gifta konu með öllum réttindum og skyldum, er því fylgja. Ef hún er þar á ofan fyrsta eiginkona efnaðs manns, nýtur hún mikilla forréttinda. Hún er jafnframt talin gædd sérstökum töfrakrafti. Til dæm- is má enginn annar en fyrsta frúin snerta smjörílátin, sem maður hennar, hinar konumar og vinnufólkið eiga að borða úr, því að einungis með því móti geta hjarðimar, sem eru á beit úti í kjarrlendinu, orðið feitar og frjósamar. Öllu þessu og reyndar mörgu fleim kynntist ég náið fyrir stríðið, þegar ég var gestur Nahemja Sjóvaleka. Oft höfðu gráu valkyrjurnar ráðist á mig í kjarrinu, en þær létu sér nægja að flissa og æpa og skjóta mér skelk í bringu. Þar sem ég var gestur höfðingjans og tiginn útlendingur, fannst jafnvel þessum æðisgengna lýð sjálf- sagt að sýna mér virðingu. Eftir sautján ára fjarveru kom ég aftur til Övambó-lands. Mér hafði tekizt að koma boð- um til höfðingjans um, að ég væri á leiðinni og gat meira að segja tiltekið daginn nokkum veginn. Sjóvaleka kom til móts við mig ásamt ritara sínum og hóp af ættingjum, og ég gekk til hans með framrétta hönd. Ég sá, að tár stóðu í augum gamla mannsins. Hann sagði með brostinni rödd: „Vinur minn, vinur minn, þú ert þá kominn aftur!“ Ég var viss um, að hann lang- aði helzt af öllu til að faðma mig. Hrærður yfir gleði hans lagði ég hendumar á axlir hon- um sem merki um vináttu og leitaði að hæfilegum orðum til að ávarpa hann: „Ég gleðst, Nahemja, mikli höfðingi, að sjá að allt er hér eins og áður og þú sjálfur hefur ekkert breytzt!" Andlit hans ljómaði, er hann heyrði þessi hrósyrði, sem sögð voru í fyllstu einlægni; svo hristi hann höfuðið. „Við eldumst öll, vinur minn, og einn góðan veðurdag hverf- 43
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.