Úrval - 01.10.1958, Page 104

Úrval - 01.10.1958, Page 104
tJRVAL, ÁST OG GRÓÐUR Húsið hjá Sandchurch. Niður við sjóinn." „Hamingjan góða! Hvers vegna?“ „Ég ætla að búa þar,“ sagði hún. „Þú gefur mér það.“ Loks fór honum að skiljast, hvað hún hafði ætlað að tala um. Nokkr- ar stjörnur voru farnar að tendrast á myrkum himninum, uppi yfir öld- óttum skóginum, og hann horfði á þær meðan hann hlustaði, hrifinn og vantrúaður. „Þú færð all'taf allt sem þú vilt,“ sagði hún. „Þú hefur alltaf haft þitt fram.“ Hann sagði ekkert. „Þú varst alinn svona upp,“ sagði hún. „Þú þurftir ekki annað en að æpa nógu lengi, þá fékkstu það sem þú vildir fá." Hún þagnaði og hélt síðan áfram: „Ég er ekki að segja að þú sért eigingjam. Þú tekur bara ekkert tillit til annarra." Tóbaksjurtirnar, gráar og drauga- legar undir húsveggnum, voru næst- um eini gróðurinn, sem lifað hafði sæmilega af langvarandi hita sum- arsins. Hann dró andan djúpt og hélt angan þeirra í munni sér. „Jæja, þú hefur þá fengið þetta fram,“ sagði hún. „Þú hefur þráð það í allt sumar og nú hefur þú feng- ið ósk þina uppfyllta." Hann langaði til að segja eitthvað í sambandi við veglyndi hennar, en honum datt ekkert í hug; og hún sagði: „Ég bið ekki um annað en þetta sumarhús og dálítið land og nóg til að lifa af.“ „Mér finnst það vera sanngjarnt." „Ég er ekki að reyna að vera sann- gjörn," sagði hún. „En maður getur ekki lifað án ástar, er það? Það er heimskulegt að lifa án ástar." Það var orðið langt síðan að um ást hafði verið að ræða þeirra á milli. Hana hafði aldrei borið á góma. „Þegar ástin er horfin," sagði hún, „er öllu lokið." Guð sé þá lofaður fyrir það, að engin ást skuli vera á milli okkar, sagði hann við sjálfan sig. Stjörn- urnar yfir dimmum skóginum urðu stöðugt skærari. Þær ljómuðu með tæru, grænu bliki á heiðum septem- berhimninum. Hægra megin við stóra húsið, niðri I lægðinni, sást eldsbjarmi í myrkrinu, og hann mundi eftir því að fólkið, sem vann við humlatínsluna, hafði tjaldað þar. Þetta var dásamlegt veður til humlatínslu. Kordelía sagði dapurlega: „Ég biðst afsökunar á véizlunni. Ég á við stúlkuna. Ég gerði þetta ekki af hefnigimi." „Ekki það ?" „Ég vissi ekki hvað hún hét fyrr en í þessari viku. Ég trúði jafnvel ekki að hún væri til. Ég varð að bjóða henni til þess að fá að vita vissu mína." Nú, það var heiðarlegt, hugsaði hann með sér. Og þar á ofan án allrar beiskju. „Ég varð þó að vita hvað hún hét,“ sagði hún. „Ég verð að geta nefnt hana —“ Honum fannst sem snöggvast að hún ætlaði að fara að gráta. Hann þóttist heyra snökt í myrkrinu, en það gat eins verið skór hennar sem urgaði við þurra mölina þegar hún 102
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.