Bókatíðindi - 01.12.1996, Side 41

Bókatíðindi - 01.12.1996, Side 41
FRÁBÆRAR FJÖLVABÆK UR ! Gamansöm bók um alvörumál. I íslendingar hafa kynnst Júrí Resitov, hinum skemmti- lega sendiherra Rússa, þessum smellna útlendingi sem talar svo kjarngóða íslensku og stráir um sig brönd- urum og skemmtisögum hvar sem hann kemur. Júrí er sannkallaður sagnameistari og afþeim brunni jós Eyvindur Erlendsson og þeir sömdu saman þessa frábœru hugarleikfimi, blik af ótrúlegum œviferli. Því að Júrí er ekki aðeins grínisti. Elann gerðist einn fremsti mannréttindapostuli Rússa og sterkasta vopn hans var almenn skynsemi á gamansömum nótum. En grín gat veríb daubans alvara! Nelson Mandela sat 27 ár í fang- elsi og ritaði œvi- sögu sína í leyn- um í hinutn al- rœtndu fangabúð- um á Robbeneyju. Úr fangelsi í forsetastól Ævisaga Mandela er ein stórbrotnasta cevisaga okkar tíma, metsölubók um allan heim. Mann- kostir hans birtust í harðskeyttri frelsisbaráttu, en líka í hógvœrð hans og réttlœti, er hann leiddi þjóð sína til sigurs og múrar fangelsanna hrundu. Funandi ástarsaga, örlagarík reynslusdga og óður til íslands Ung Parísarstúlka kotn til íslands í sutnarleyfi til að reyna eitthvað nýtt og œvintýralegt! Þá kom til sögunnar íslendingur, ítnynd hins norrœna vík- ings — og þar með hefst œvintýrið. Þau elskast heitt og byggja upp Friðheima, unaðsreit á Islandi.

x

Bókatíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.