Bókatíðindi - 01.12.1996, Blaðsíða 72
Ævisögur og endurminingar
um, austur fyrir „tjald“
og vestur um haf, á sinn
persónulega og hlýlega
hátt, kryddaðan gamni.
Lýsing hans á ferð um Is-
lendingabyggðir í Vestur-
heimi er að sjálfsögðu
áhugaverð. „Þar bíða vin-
ir í varpa.“ Hitt kann ein-
hvern að undra að frá-
sögn af ferðalagi þriggja
manna um „austantjalds-
lönd“ geti verið svo
skemmtileg sem raun ber
vitni. Vilhjálmur, Þráinn
Valdimarsson og Agúst á
Brúnastöðum fóru á af-
mælisþing Bændaflokks-
ins í Austur-Þýskalandi
en síðan bauð forseti
Búlgarfu þeim óvænt
heim. Þar dvöldust þeir í
góðu yfirlæti, fóru víða
og var jafnan líf og fjör.
Ferðaslangur er skemmti-
lestur sem Vilhjálms er
von.
228 blaðsíður.
Bókaútgáfa Æskunnar
ISBN 9979-808-24-1
Leiðb. verð: 3.390 kr.
Thor Vilhjál msson
FLEY OG
FAGRAR ÁRAR
Thor Vilhjálmsson
Auga Thors fyrir mann-
lífi og náttúru á ekki sinn
líka og gildir þá einu
hvort hann er staddur á
Snæfellsnesi, Italíu eða
Grikklandi. Sagnamaður-
inn og skáldið mætast í
þessum smámyndum frá
stundum og stöðum hér
og þar á viðburðaríkri
ævi.
301 blaðsíða.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1448-6
Leiðb.verð: 3.680 kr.
FORÐUM
GENGIN SPOR
Viðtöl við sex valin-
kunna eldri borqara í
Hafnarfirði
Jón Kr. Gunnarsson
Viðmælendur lýsa and-
rúmslofti fyrri ára, lífs-
ferli sínum og viðhorf-
um. Þróun byggðar verð-
ur vart rakin nema að
kynnast ferli þeirra sem
komnir eru á efri ár.
Byggðarsaga er rakin í
viðtölum við þá sem
muna tímana tvenna.
Fróðleg bók um þróun
byggðar. Fjölmargar mynd-
ir prýða bókina. Þeir sem
segja frá eru Jón Magnús-
son í Skuld, Jenný Guð-
mundsdóttir, Halldór
Sigurgeirsson, Gíslína
Gísladóttir, Elísabet Reyk-
dal og Jóhann Olafur
Jónsson.
240 blaðsíður.
Rauðskinna
ISBN 9979-9155-3-6
Leiðb.verð: 3.420 kr.
GÖTUSTRÁKUR
Á SPARISKÓM
Lífssaga Þorsteins
Viggóssonar athafna-
og ævintýramanns
Þóra Kristín
Ásgeirsdóttir
Þorsteinn Viggósson í
Kaupmannahöfn er
mörgum Islendingum að
góðu kunnur en hann
átti og rak skemmtistað-
ina Pussycat og Bona-
parte í miðborg Kaup-
mannahafnar. Þorsteinn
var einnig þekktur úr
skemmtanalífinu í
Reykjavík sem fram-
kvæmdastjóri Stork-
klúbbsins og fleira.
Þorsteinn rekur bernsku
sína á Eskifirði, árin sem
hann var í siglingum og
lýsir því þegar hann var
matreiðslunemi á einum
fínasta veitingastað
Kaupmannahafnar, Fras-
cati við Ráðhústorgið.
Hann rekur ævintýraleg-
an feril sinn og lýsir því
á áhrifamikinn hátt þeg-
ar hann missti allt út úr
höndunum og þurfti að
vinna sig upp aftur úr
engu. Þorsteinn kemur
víða við í frásögninni og
hlífir hvorki sjálfum sér
né öðrum. Þorsteinn er
þrígiftur og lýsir á opin-
skáan hátt hjónaböndum
sínum, hann segir frá
ástinni og hinu ljúfa lífi,
kynnum sínum af undir-
heimum Kaupmanna-
hafnar og því þegar hann
rak þar hóruhús fyrir
Simon Spies.
Um 250 blaðsíður.
Skjaldborg ehf.
ISBN: 9979-57-317-1
Leiðb.verð: 3.480 kr.
Jón Kr.
Cunnarsson
HAFIÐ
HUGANN DREGUR
Viðtöl við fimm valin-
kunna sjósóknara
Jón Kr. Gunnarsson
Sjómennskan hefur breyst.
Skipstjórar nútímans eru
hógværir tæknimenn
sem hafa tileinkað sér
fullkomnustu vinnubrögð
við veiðar og vinnslu. Ar-
angur þeirra er undir-
staða nútímalífs og vel-
megunar á Islandi. Harð-
drægt líf og alþýðu-
menntun fyrri ára hefur
skapað sterka kynslóð
sjósóknara á okkar dög-
um.
I þessari bók segja fimm
valinkunnir skipstjórar
sögu sína en þeir eru:
Andrés Finnbogason,
skipstjóri, Reykjavík, Aki
Guðmundsson, skipstjóri
á Bakkafirði, Guðmundur
Vigfússon, skipstjóri frá
Holti, Halldór Hallgríms-
son, skipstjóri, Akureyri,
og Halldór Þórðarson,
skipstjóri í Keflavík.
224 blaðsíður.
Skjaldborg ehf.
ISBN: 9979-57-333-3
Leiðb.verð: 3.680 kr.
pórðarson
r
vngni
timnns
í VAGNI TÍMANS
Agnar Þórðarson
Stórfróðleg og skemmtileg
minningabók um íslenskt
bókmenntalíf árin 1939—
1961. Höfundi lætur vel
að fanga anda tímans;
hann segir frá ferðalögum
sínum og áhrifavöldum,
frá kalda stríðinu, frá ís-
lenskum og erlendum
bókmenntaverkum og
margar skemmtilegar sög-
ur eru af samferðamönn-
um Agnars í skáldahópi,
t.a.m. Steini Steinarr. Bók
fyrir þá sem hafa áhuga á
bókmennta- og menning-
arsögu, en líka fyrir þá
sem hafa gaman af góðum
mannlýsingum.
354 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1472-9
Leiðb.verð: 990 kr. kilja
1.980 kr. ib.
72