Bókatíðindi - 01.12.1996, Blaðsíða 55
Bœkur almenns efnis
HESTAR OG MENN
1996
Guðmundur Jónsson
og Þorgeir
Guðlaugsson
I bókinni segir frá hesta-
mönnum og hestum
þeirra í ferðalögum og
keppni. Sagt er frá helstu
mótum sumarsins í máli
og myndum, en þau eru:
Fjórðungsmót á Suður-
landi, íslandsmót í Mos-
fellsbæ og Norðurlanda-
mót í Stokkhólmi. Bókin
er prýdd fjölda mynda.
242 blaðsíður í stóru
broti.
Skjaldborg ehf.
ISBN: 9979-57-340-6
Leiðb.verð: 3.980 kr.
HIN S
jVIYRKU
SPOR
£=1
sextán
zunriir
sakamálaþættir
HIN myrku spor
Tim Wilson
•*ýðing: Glúmur
Baldvinsson og
Jóhann Finnsson
Safn sextán sannra saka-
málaiirásagna. Málin sem
fjallað er um í bókinni,
eru frá ýmsum tímum en
eiga það sameiginlegt að
hafa vakið gífurlega at-
hygli. Meðal frásagnanna
er örlagasaga Ruth Ellis,
sem var síðasta konan
sem var tekin af lífi í
Bretlandi, þættir um hina
illræmdu Theodore
Bundy og Peter Kurten
og eitt sérstæðasta saka-
mál seinni tíma, þegar
ástsjúk kona rændi
mormónapresti.
160 blaðsíður.
Fróði
ISBN 9979-802-93-6
Leiðb.verð: 1.990 kr.
HUGARFAR OG
HAGVÖXTUR
Menning, þjóðfélag og
framfarir á
Vesturlöndum
Stefán Ólafsson
f bókinni er fjallað um
hugarfar nútímamanna.
Höfundur rekur þætti úr
hugmyndasögu þjóðfé-
lagsfræðanna frá miðöld-
um til nútímans og sýnir
hvernig veraldleg lífs-
skoðun varð smám sam-
an ríkjandi í menningu
Evrópumanna. Þá sýnir
höfundur hvernig breytt
hugarfar tengdist þjóðfé-
lagsbreytingum, einkum
tilkomu kapítalisma, lýð-
ræðisskipulags og iðn-
væðingar, sem skapaði
vestrænum þjóðum sér-
stöðu.
í seinni hluta bókarinn-
ar veitir höfundur athygl-
isverða innsýn í hugarfar
íslendinga og forsendur
framfara hér á landi sam-
anborið við önnur vest-
ræn ríki.
355 blaðsíður.
Félagsvísindastofnun og
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-108-3
Leiðb.verð: 3.450 kr.
HUGARLENDUR
TOLKIENS
Svipmyndir af Miðgarði
Þýðing: Þorsteinn
Thorarensen
Með Hringadróttinssögu
skapaði Tolkien nýjan
heim, Miðgarð. Þessi
heimsmyndarlýsing hef-
ur heillað lesendur um
víða veröld. Eins hafa
listamenn sótt sér inn-
blástur í Hugarlendur
Tolkiens. Bók þessi er
einskonar listaverkabók,
full af hrífandi listaverk-
um úr heimi Hringadrótt-
inssögu. Hverri mynd
fylgir viðeigandi texti.
Kærkomin sending fyrir
hina mörgu unnendur
sögunnar um Hringinn.
80 blaðsíður.
Fjölvi
ISBN 9979-58-290-1
Leiðb.verð: 2.890 kr.
HUGMYNDAHEIMUR
MAGNÚSAR
STEPHENSEN
Ingi Sigurðsson
Fjallað um mótun hug-
mynda Magnúsar, og
sögulegt baksvið helsta
leiðtoga upplýsingarinn-
ar á Islandi og skoðað
hvernig erlend upplýs-
ingaráhrif birtast í skrif-
um hans, en þau voru
mikil og margvísleg.
Kannað er hvernig hug-
myndir Magnúsar tengj-
ast hugmyndum síðari
kynslóða. Ingi Sigurðs-
son hefur áður ritstýrt
Upplýsingunni á Islandi,
útg. 1990.
200 blaðsíður.
Hið ísl. bókmenntafélag
ISBN 9979-804-91-2
Leiðb.verð: 3.500 kr.
HÚSAFELLSÆTT l-ll
Gylfi Ásmundsson
655 blaðsíður.
Mál og mynd
ISBN 9979-9184-5-4
/-6-2
Leiðb.verð: 14.800 kr.
HVAR ENDAR VERU-
LEIKINN?
Dulrænar frásagnir
Jóhanna Á.
Steingrímsdóttir
Hver er sá máttur eða afl
sem framkallar heyrnir
og sýnir og er ekki hægt
að skýra með rökum?
Hverjar eru orsakir
drauma? Hvað með álfa-
trúna? Til eru margar
þjóðsögur og reynslusög-
ur miðla um þessi mál-
efni en í þessari bók er
lýst á sérstæðan hátt fyr-
irbærum úr samtíman-
um. Reynt er eftir föng-
um að leita heimilda og
sögurnar bera með sér
bæði hlýtt og gamansamt
viðhorf höfundar til
þessara hluta.
Þetta er níunda bók Jó-
hönnu A. Steingríms-
dóttur en auk þess hefur
hún gert fjölda útvarps-
þátta sem náð hafa sér-
stakri hylli hlustenda.
150 blaðsíður.
Skjaldborg ehf.
ISBN: 9979-57-326-0
Leiðb.verð: 2.980 kr.
55
BOKVAL
A K U R E Y R I
SIMI 462 61