Íslenska leiðin - 01.11.2003, Blaðsíða 5
móðgun, ekki einungis við þá einstaklinga sem það
upplifa heldur einnig við fjölskyldur þeirra og
ástvini. Fyrir utan augljósan líffræðilegan mun á
gerð kynjanna, er ekkert hægt að alhæfa um
misjafnt eðli eða eiginleika. Við erum eins misjöfn
og við erum mörg. Konur eru helmingur
landsmanna og þrátt fyrir að vera meirihluti
námsmanna í háskólum landsins endurspeglast
hlutfall þeirra hvorki í stjórnmálaþátttöku né í
öðrum valdastéttum. Eitt af stærri verkefnum
samfélagsins er að leysa þennan vanda. Við
reynum að varpa Ijósi á hann á þessum síðum.
Af ofangreindu má sjá að
stjórnmálafræðinni er ekkert óviðkomandi og ein
besta afurð þeirrar fræðigreinar birtist í þeirri
staðreynd hversu víða kraftar stjórnmálafræðinga
nýtast, hvort sem er hjá hinu opinbera eða í einka-
geiranum. Það krefst átaks til þess að fræðigreinin
fái að vaxa og dafna. Við hvetjum alla
stjórnmálafræðinga til þess að taka þátt í því
verkefni. Útgáfa þessa rits er liður í því verkefni.
Starfsemi félags stjórnmálafræðinema er einnig
liður í því verkefni. Starfsemi Félag
stjórnmálafræðinga er liður í því verkefni og
stofnun Hollvinasamtaka stjórnmálafræðiskorar
einnig. Mikill vöxtur hefur átt sér stað innan
skorarinnar sjálfrar með tilkomu MPA námsins,
stofnun Smáríkjasetursins og Stofnun
stjórnsýslufræða og stjórnmála. Aukinn ásókn í
greinina ber þess einnig vitni. Þróunin hefur verið
jákvæð. Látum til okkar taka og aukum vegsemd
og virðingu fagsins, í þeirri von um að framlag
greinarinnar haldi áfram að skipta máli í
þjóðfélagsþróuninni.
Frá formanni Politicu
Frá því íslenska leiðin kom út fyrir ári
síðan hefur margt gerst hjá Politicu
félagi stjórnmála-fræðinema.
Undirrituð var kjörinn formaður
Politicu í vor 09 tók við öflugu félagi úr
höndum síðustu stjórnar. Afram hefur verið haldið
á þeirri braut og ég hef verið svo lánsöm að með
mér hefur starfað frábært fólk sem leggur metnað
sinn í að gera vel.
Fyrir þetta starfsár var sett fram nýtt
markmið með starfi félagsins, að kynna
stjórnmálafræðinám og stjórnmálafræði fyrir sem
allra flestum. Til þess að ná þessu markmiði hefur
Politica haldið nokkra opna fundi og málþing um
málefni líðandi stundar, meðal annars um
eignarhald á fjölmiðlum og vændi. Við höfum boðið
stjórnmálaleiðtogum að koma og ræða við
stjórnmálafræðinema í návígi í fundaröð sem ber
yfirskriftina Forum Politica - Vettvangur dagsins.
Allir þessir fundir hafa tekist mjög vel. í upphafi
starfsárs þessarar stjórnar voru stofnuð
Hollvinasamtök stjórnmálfræðiskorar, sem hafa
það að markmiði, eins og Politica að efla
stjórnmálafræðiskor og stjórnmálafræði sem
fræðigrein. Politica hefur gefið út
kynningarbækling sem dreift hefur verið til
fyrirtækja í því augnarmiði að þau sjái hversu
fjölbreytt og góð menntun stjórnmálfræði er.
Heimasíða félagsins (www.politica.hi.is) hefur
verið efld með ýmsum hætti og þetta blað,
íslenska leiðin ber líka frjórri hugsun
stjórnmálafræðinema góðan vitnisburð. Það
frumkvæmi sem býr meðal stjórnmálfræðinema
hefur fundið sér fjölbreytta útrás, meðal annars í
Hermilíkani af Sameinuðu Þjóðunum (ICEMUN)
sem haldið var í Háskóla íslands í haust.
Aldrei fyrr hefur Politica verið jafn áberandi
í samfélaginu eins og nú. Þegar þetta er skrifað er
að líða vika þar sem fjallað hefur verið um Politicu
í öllum helstu fréttamiðlum landsins. Þetta er í
samræmi við þá stefnu núverandi stjórnar að
kynna félagið og námið fyrir almenningi.
Lokatakmarkið er það, þegar stjórnmálafræðinám
ber á góma, þurfi enginn að velkjast í vafa um
hvað það er eða hvað stjórnmálafræðingar taka
sér fyrir hendur að námi loknu. Það er mín trú að
með þessu verði námið okkar dýrmætara og
stjórnmálafræðingar eftirsóttari á
vinnumarkaðnum.
Erla Ósk Ásgeirsdóttir formaður Politicu 2003-04.
Akraneskaupstaður
bls.5