Íslenska leiðin - 01.11.2003, Síða 43

Íslenska leiðin - 01.11.2003, Síða 43
Breytt heimsmynd Bush tEiríkur Bergmann Einarsson, stjármalafr^ingur við H.í. Samskipti Bandaríkjanna og Evrópuríkja í utanríkismálum hafa kólnað að undanförnu og á tímabili nálgast frostmark. Bandaríkin hafa í síauknu mæli farið fram með einhliða aðgerðum á alþjóðavettvangi og lítið lagt upp úr því að hafa alþjóðasamfélagið með í ráðum, - nema þá aðeins þegar það hentar sérstaklega. Og þá virðist handfylli bandalagsþjóða oft duga til að réttlæta aðgerðir. Jacques Chirac Frakklandsforseti hefur til að mynda látið hafa eftir sér að innrás Bandaríkjanna og bandalagsþjóða þeirra í írak, án samþykkis Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, hafi leitt til mestu kreppu sem alþjóðasamfélagið hefur staðið frammi fyrir á þeim vettvangi. Vaxandi gjá Gjáin milli Evrópu og Bandaríkjanna verður sífellt augljósari á alþjóðavettvangi. Það ruglar þó myndina að Evrópuríkin voru klofin í afstöðu sinni til innrásarinnar f írak. Til að mynda stóð Bretland þétt við hlið Bandaríkjanna meðan Frakkland og Þýskaland lýstu ítrekað andstöðu við stríðið. En almennt má segja að einhyggjustefna Ameríkuveldisins hafi leitt til þess að þeir eru að einangrast frá fyrrum bandamönnum í Evrópu. Heimsmyndin er að breytast. Leiða má líkum að því að einhyggjustefna Bandaríkjanna verði til að flýta fyrir framþróun hinnar sameiginlegu utanríkisstefnu Evrópusambandsins. Þessi þróun skiptir miklu fyrir okkur íslendinga en utanríkistefna Islands hefur í raun hingað til falist í því að spila til skiptis á Bandaríkin og Evrópu, allt eftir því hvað hentar best hverju sinni, leitast er við að öðlast hámarks ávinning fyrir lágmarks framlag. Skoðum fyrst þær breytingar sem orðið hafa á utanríkisstefnu Bandaríkjanna sem rekja má til valdatöku George W. Bush Realistinn Bush Sú þróun sem átt hefur sér stað á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í átt til einhliða aðgerða þarf ekki að koma svo ýkja mikið á óvart. Þegar Bush komst til valda markaðist val hans á ráðherrum einkum af því að hann hafi viljað með skipan þeirra vinna upp eigið reynsluleysi sem var altalað á þeim tíma. Þeir sem fjallað hafa um stjórnunarstíl Bush hafa enn fremur sagt að hann treysti meira á ráðgjafa en aðrir leiðtogar. í greiningu sem vikuritið Economist birti skömmu eftir valdatöku hans var stjórn Bush skipt uppí þrjú lög. í innsta kjarna eru þungavigtar íhaldsmenn af gamla skólanum, sem áttu að móta helstu efnahags- og utanríkisstefnu Bandaríkjanna næstu fjögur árin. Þetta eru náungar sem þjónuðu í ríkisstjórn Bush eldri og sumir þjónuðu jafnvel Ford gamla fyrir aldarfjórðungi. Næsta lag skipa svo góðir og gegnir kristilegir hægri-íhaldsmenn sem eiga að vinna að helstu innanríkismálum. Ysta lagið er svo skipað losaralegri hópi sem hefur minni áhrif, en þar kennir ýmissa grasa. Þegar ríkisstjórnin er skoðuð í þessu Ijósi heldur Economist því fram að hér sé á ferðinni mun íhaldssamari stjórn en ætla mætti við fyrstu sýn. Við rýni í utanríkisstefnu Bush er samkvæmt þessu mest um vert að skoða kappana sem skipa innsta hringinn. Til helstu utanríkisráðgjafa Bush teljast nokkrar helstu stórkanónur kalda stríðsins. Menn á borð við Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra, Paul Wolfowitz aðstoðarvarnamálaráðherra, Dick Cheney varaforseta og Colin Powell utanríkisráðherra. Nálgun þeirra til utanríkismála hefur í alþjóðastjórnmálafræðum verið flokkuð undir hatt realismans. "Realism vs. Liberal internationalism" Með nokkurri einföldun má skipa kenningum um alþjóðapólitík upp í tvær gagnstæðar nálganir: Annars vegar eru það realistar sem telja að skýringa á breytingum í alþjóðakerfinu sé fyrst og síðast að finna í samskiptum ríkjanna sjálfra. Hins vegar höfum við svokallaða liberal internationalista, eða frálslynda alþjóðasinna, — en nálgun ríkisstjórnar Bill Clinton í alþjóðamálum hefur frekar verið á þeim nótum. Frjálslyndir alþjóðasinnar halda því fram að alþjóðakerfið sé ekki aðeins samtala ríkjanna sem það mynda, heldur búi alþjóðakerfið í sjálfu sér yfir einhverskonar viðhorfum og gildum sem hafa áhrif þvert yfir landamæri fullvalda ríkja. Samkvæmt kenningunni eru sumsé fleiri gerendur í kerfinu en bara ríki sem hafa áhrif á þróun alþjóðakerfisins. Kenningin heldur því fram að til séu einhver sameiginleg alþjóðleg gildi sem nú á tímum byggja á hugmyndum um frelsi, lýðræði og mannréttindi. Samkvæmt þessu eiga fullvalda ríki nú fyrir margra hluta sakir sífellt erfiðara með að standa gegn alþjóðlegum straumum og stefnum. Því er það ekki eingöngu valdaþarátta ríkjanna í alþjóðakerfinu sem skýrir alþjóðlega þróun. Til að ná árangri í alþjóðakerfinu þurfa ríkin að leggja áherslu á alþjóðasamvinnu sem byggir á málamiðlunum en ekki eingöngu á krafta- og valdapólitík Ef marka má hegðun utanríkismálagengisins sem Bush styðst við, þá virðist Bush-stjórnin frekar vera höll undir nálgun realista, en það er í raun sú stefna sem hefur verið bls.43

x

Íslenska leiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.