Íslenska leiðin - 01.11.2003, Blaðsíða 19
Stefnumörkun stjórnvalda er hins vegar
ábótavant. Hægt er að nýta kosti samkeppni og
einkarekstrar til lækkunar á kostnaði, án þess að
hlutur hins opinbera í kostnaði við hvern sjúkling
minnki, né heldur gæði þjónustunnar. Aukið vægi
þjónustusamninga og greiðsla á grundvelli
kostnaðargreiningar sjúkdómstilvika hefur skilað
góðum árangri víða í nágrannalöndunum.
Stjórnvöld þurfa að láta fara fram gagngera
endurskoðun á fjármögnunarleiðum
heilbrigðisþjónustunnar, með jákvæða reynslu
nágrannalandanna að leiðarljósi. Gríðarlegir
hagsmunir eru í húfi, hvað varðar hagkvæmni í
rekstri, skattbyrði og þar með lífskjör þjóðarinnar.
Áframhald samkeppnis- og
þjónustuvæðingar í menntakerfinu
Stefna ber að því að nemendur Ijúki grunnskóla
ári fyrr en nú er og framhaldsskóla tveimur árum
fyrr en nú. Þjóðhagslegur ávinningur af slíkri
breytingu hefur verið metinn á níunda milljarð
króna fyrst í stað, sem síðan færi vaxandi.
Hagsmunir atvinnulífsins af sumarvinnu skólafólks
standa ekki í vegi fyrir lengingu skólaársins í
þessu skyni, sé hún gerð fyrri hluta sumars.
Áfram berað halda þeirri þróun til samkeppnis- og
þjónustuvæðingar í menntakerfinu sem þegar
hefur skilað miklum árangri á háskólastigi.
Skipting í skólahverfi á að heyra sögunni til á
öllum skólastigum. Opinber fjárframlög á að
sérmerkja nemendum og þau þannig að renna til
þeirra skóla sem nemendur og eftir atvikum
foreldrar þeirra velja. Aukin samkeppni í
menntakerfinu leiðir til aukinnar fjölbreytni,
þjónustu og gæða og þannig til aukinnar
framleiðni og bættra lífskjara.
1 Aðildarfélög SA eru Landssamband íslenskra útvegsmanna,
Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök atvinnurekenda í raf- og
tölvuiðnaði, Samtök fiskvinnslustöðva, Samtök
fjármálafyrirtækja, Samtök iðnaðarins og SVÞ-Samtök
verslunar og þjónustu.
Verkalýðsmál og vinnuréttur
Alþýðusamband íslands er langstærstu heildarsamtök launafólks á
vinnumarkaði, með tæplega 80.000 félagsmenn innan sinna raða.
Vefur Alþýðusambands íslands - www.asi.is - er fyrsti viðkomustaður þeirra
sem vilja fræðast um verkalýðsmál og réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
Alþýðusamband íslands
Sætúni 1
105 Reykjavík
sími 53 55 600
fax 53 55 601
rafpóstur - asi@asi.is
bls.19