Íslenska leiðin - 01.11.2003, Qupperneq 30

Íslenska leiðin - 01.11.2003, Qupperneq 30
Friðsamleg og frjálslynd heimsskvpan: Um bandaríska heimsveldið Davíð Logi Sigurðsson blaðamður hjá MDrguriblaðlnu og stuncfeksxHiri- í stjómrálafræði við HÍ SKYNDILEGA er ekki talað um annað en hið bandaríska heimsveldi (American empire) í sumum helstu frétta- og fræðiritum. Ástæðan er augljós: herför Bandaríkjamanna í írak hefur gefið mönnum tilefni til að álykta sem svo að ráðamenn í Washington hafi markað nýja stefnu í utanríkismálum, sem í grundvallaratriðum feli í sér að Bandaríkin hafi snúið baki við einangrunarhyggjunni sem svo lengi einkenndi afstöðu þeirra til umheimsins. Aðgerðir Bandaríkjastjórnar og ummæli helstu valdamanna þykja til marks um að öflugasta ríki veraldar sé (hugsanlega) loksins að taka sér stöðu sem fullveðja heimsveldi í þeim skilningi sem menn lögðu í það orð fyrr á öldum.' Athygli vekur að það eru ekki aðeins andstæðingar utanríkisstefnu Bandaríkjanna sem nú ræða um bandarískan imperíalisma. Breska vikuritið The Economist gerði málefninu til að mynda skil í sumar og komst að þeirri niðurstöðu að "... bandaríska keisaradæmið stenst andarprófið: það lítur ekki bara út eins og önd og vaggar eins og önd, það gaggar eins og önd." Bendir blaðið á að ýmsir þekktir álitsgjafar tali nú um tilvist bandarísks heimsveldis á jákvæðum nótum, en slíkt heyri til tíðinda þegar menn hafi sögu Bandaríkjanna í hugaJ' Ekki þarf að koma á óvart að þeir sem aðhyllast kenninguna um bandarískan imperíalisma ræði um atburðina 11. september 2001 sem alger vatnaskil. George W. Bush Bandaríkjaforseti álíti það nú köllun sína að verja líf bandarískra ríkisborgara og tryggja hagsmuni Bandaríkjanna hvarvetna; og til þess skuli beitt brögðum sem áður hefði ekki verið beitt, nýr hugsunarháttur þurfi að ryðja sér til rúms. Bandaríkjamenn hafa m.a. ákveðið að ráðast í heildarendurskoðun á herafla sínum, ekki síst í Evrópu, enda sé Ijóst að núverandi viðbúnaður miðist við aðstæður (kalda stríðsins) sem ekki eigi lengur við. Hefur komið fram, m.a. í tengslum við umræðu um varnarsamning íslands og Bandarfkjanna, að Bandaríkjastjórn vill gjarnan færa herafla frá vesturhluta álfunnar. Á íslendingum brennur mest spurningin um það hvort Bandaríkjamenn flytji þær fjórar til sex herþotur, sem jafnan eru til staðar í herstöðinni í Keflavík, burt frá landinu. Hugmyndir eru hins vegar einnig uppi um að fækka verulega í þvf sjötíu þúsund manna herliði, sem bækistöðvar hefur í Þýskalandi, og fjölga í staðinn hermönnum í löndum eins og Rúmeníu og Búlgaríu, þar sem aðgangur að hafnaraðstöðu við Svartahafið er tryggður. Sömuleiðis eru Bandaríkjamenn sagðir vilja fjölga hermönnum, sem væru til taks í herstöðvum í Afríkjuríkjum (Alsír, Marokkó og hugsanlega Túnis).''' Hvað býr að baki þessari viðamiklu uppstokkun? Sumir vilja meina að ekki sé nóg að vísa til baráttunnar gegn hryðjuverkum, skýringin sé nefnilega að miklu leyti hugmyndafræðileg. Þannig segir Edward Rhodes, framkvæmdastjóri Center for Global Security and Democracy við Rutgers-háskóla í New Jersey, í nýlegri ritgerð að heimssýn Bush Bandaríkjaforseta feli í grunninn í sér "óformlegt, alheimsveldi Bandaríkjanna" (informal global American Empire).'v Það sé mat Bush og hans aðstoðarmanna að ef takast eigi "... að skapa friðsamlega og frjálslynda heimsskipan þarf meira en bara afl Bandaríkjanna, og meira en hernaðarmátt Bandaríkjanna, það þarf að tryggja alheims yfirráð Bandaríkjanna á hernaðarsviðinu."v Ljóst má vera að ýmis þemu f þessari heimsvaldastefnu Bandaríkjastjórnar, þessum imperíalisma Bush og hans manna, voru fram komin fyrir hina voveiflegu atburði 11. september 2001. Bandaríkjastjórn var til að mynda búin að segja sig frá Kyoto-samkomulaginu fyrr það ár og ýmislegt annað, sem Bush-stjórnin hafði sagt og gert frá því að hún tók við í janúar 2001, hafði orkað tvímælis erlendis, svo ekki sé meira sagt. Það má þvf kannski segja að umræðan um imperíalisma Bandaríkjastjórnar sé einfaldlega framhald eða angi af umræðunni um þá tilhneigingu Bush-stjórnarinnar til að fara sínu fram hverju sem líði andmælum annarra þjóða eða alþjóðastofnana (þetta hafa menn kallað unilateralisma) í stað þess að ná fram vilja sínum í samráði við aðra (sem menn kalla multilateralisma). Bush hefur sýnt að hann hneigist gjarnan til að aðhyllast fyrri stefnuna.v' Þrátt fyrir að Atlantshafsbandalagið (NATO) samþykkti eftir árásina á Bandaríkin 11. september 2001 að virkja í fyrsta skipti fimmtu grein stofnsáttmála bandalagsins, um að árás á eitt NATO-ríki jafngilti bls.30
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Íslenska leiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.