Íslenska leiðin - 01.11.2003, Side 60
Telurðu að það eigi að setja þak á laun karla
og kvenna, hvað fæðingarorlof varðar, vegna
þessara auknu og ófyrirséðu fjárútláta?
Ég tel að það komi alveg til greina. Ég hef
tilfinningu fyrir því að það þyki flestum nokkuð
réttlætismál að það sé eitthvað þak á þessu. Hins
vegar mun það ekki hafa úrslitaáhrif á útstreymi úr
sjóðnum, vegna þess að meðalupphæð bótanna er
ekki það há. Við verðum að passa okkur á því að,
hverjar þær breytingar sem við gerum á þessum
lögum, þær gangi ekki gegn markmiðum þeirra.
Árið 1997 samdi ríkið um bókun í
kjarasamningum það ár um að stjórnvöld
myndi standa fyrir úttekt á launamuni
kynjanna hjá hinu opinbera. Hvenær er stefnt
að því að stjórnvöld geri þessa úttekt?
Það er eitt af því sem mér hefur þótt umræðan
snúast of mikið um, þegar við ræðum launamun
kynjanna. Það er mismunandi álit á því hversu
mikið hann er. Menn hafa verið að deila um hvort
að hann sé 14% eða 16% eða 20%, o.s.frv. Mér
finnst það aukaatriði. Það sem mér finnst
aðalatriðið vera og væntanlega flestir eru sammála
um er að það er klár munur á launum kynjanna.
Kynin eru ekki að bera það sama úr býtum fyrir
sömu störf. Það er óþolandi. Það er sá vandi sem
við þurfum að leysa. Eg get ekki fellt mig við það
að dætur mínar eigi að fá lægri laun en synir mínir.
Ég get ekki fellt mig við það og ég ætla ekki að
gera það. Ég tel að við eigum að ráðast gegn
þessu og við erum að því t.d. hér í ráðuneytinu,
með því að fara kerfisbundið í gegnum allt okkar
launakerfi, til þess að skoða það hvort að það
gætu legið einhverjar gildrur í uppbyggingu
kerfisins sem valda því að konur fá lægra úr býtum
en karlar fyrir sömu störf. Þetta ætlum við síðan
að kynna fyrir okkar undirstofnunum. Ég hef
þegar átt fund með öllum forstöðumönnum okkar
undirstofnanna og lagt fyrir þá mínar áherslur, því
ég vil að það sé ráðist gegn þessu. í framhaldi af
því mun ég kynna þetta fyrir ríkisstjórn. Ég tel að
við getum með vilja og það er vilji fyrir því í
þessari ríkisstjórn að ráðast gegn þessu. Núna
erum við að vinna að viðamikilli könnun, þ.e.
félagsmálaráðuneytið, forsætisráðuneytið, Háskóli
íslands og Jafnréttisstofa í samvinnu við Gallup um
ansi margt sem varðar jafnrétti kynjanna. Þar
kemur launamunurinn sterkt inn. Þar munum við
sjá viðhorf fólks til þessara mála og geta lesið
ýmsar gagnlegar upplýsingar úr því.
Árið 1997 var samþykkt á Alþingi í kjölfar
þingsályktunar um mótun opinberrar
fjöiskyidustefnu og aðgerða til að styrkja
stöðu fjölskyldunnar, að sett yrði á laggirnar
svokallað fjölskylduráð til að stuðla að
eflingu og vernd fjölskyldunnar. Hvernig
hefur starfi þessara nefndar verið háttað og
hvaða tillögum hefur nefndin iagt til fyrir
stjórnvöld (þskj. 1230 lokaskjal 121.Iþ. 72.
mál )?
Fjölskylduráð er starfandi nú á dögum. Eitt af því
sem það hefur verið vinna að núna í samvinnu við
Háskólann á Akureyri er gerð svokallaðrar
fjölskylduvogar. Þar er reynt að vega og meta
ýmis áhrif þess sem er að gerast í
samfélagi okkar, þ.m.t.
lagasetningar o.fl., á hag
fjölskyldunnar. Þetta erverkefni sem
við erum að vona að Ijúki snemma á
næsta ári. Við getum þá kynnt það
á tíu ára afmæli árs fjölskyldunnar,
sbr. 1994. Við erum síðan að
undirbúa opnun sérstaks
fjölskylduvefs, sem við vonum að
geta kynnt á sama tíma. Ráðið er
því starfandi og er að vinna að
mikilvægum verkefnum. Hins vegar
er það hlutur sem þarf að vera í
stöðugri endurskoðun. Við þurfum
að vega það og meta hvort þetta sé
að skila tilætluðum árangri. Það er
kominn tími til þess að fara yfir
þetta.
Hlutfall kvenna sem starfa sem
aðalmenn í stjórnum, nefndum
og ráðum ráðuneytanna er nú
26% þrátt fyrir að flest
ráðuneytin hafi sett sér það takmark að jafna
stöðu kynjanna skv. framkvæmdaáætlun
ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti
kynjanna. Hver telurðu ástæðu þess vera að
ráðuneytin nái ekki fram takmörkum sínum?
Ég held að það kunni að vera mjög margar
ástæður fyrir því. Þar sem ég þekki til, þá er fólk
vakandi yfir þessu. Ég held að það sé ekki hægt
að finna einhverja einhlíta ástæðu. í fyrsta lagi
hafa ráðuneytin takmarkað vald á því hvernig
bls.60