Gátt - 2014, Side 19
19
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
borgar búa 26% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð í Reykjavík í
Breiðholtshverfi. Árið 2012 var fjöldi einstaklinga í Breiðholti
sem fékk fjárhagsaðstoð 1.071 en þar af voru 863 með fram-
færslustyrk og af þeim 164 einstaklingar með fjárhagsaðstoð
allt árið. Aðrir fengu heimildargreiðslur, þ.e. fyrirframgreidda
húsaleigu, tannlækningar og/eða námsstyrki. Úrræði verk-
efnisins Menntun núna verða kynnt fyrir notendum félags-
þjónustunnar auk þess sem leitað verður leiða til að þróa og
prófa nýjar leiðir fyrir ákveðna hópa notenda.
Tafla 3 sýnir menntun, fjölda og hlutfallslega skiptingu
notenda fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram að rúmlega 70%
þeirra sem njóta fjárhagsaðstoðar eru einungis með grunn-
skólapróf. Ef þessi prósenta er yfirfærð á heildarfjölda þeirra
notenda þá má áætla að rúmlega 700 manns hafa einungis
lokið grunnskólaprófi.
þ A R F A G R e I N I N G
Þarfagreining á vegum Menntunar núna fór fram annars
vegar með gagnaöflun í tengslum við lýðfræði Breiðholts og
hins vegar með gögnum sem aflað var með viðtölum, rýni-
hópum, umræðufundum með fulltrúum markhópsins, með
ráðgjöfum sem sinna honum og öðrum hagsmunaðilum.
Í byrjun verkefnisins vann verkefnisstjórnin eftirfarandi
SVÓT-greiningu (styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri)
þar sem fram kom að:
• styrkleikar væru meðal annars aðgengi að mark-
hópum, mögulegri samþættingu á milli skólakerfa,
fjölbreyttu framboði á menntun, jákvæðu viðhorfi og
fjölmenningarstarfi í hverfinu,
• veikleikarnir fælust m.a. í persónulegum aðstæðum
fólks, skorti á virðingu fyrir menntun, fordómum og
ónógum stuðningi við fólk í námi,
• ógnanir fælust meðal annars í að fólk fengist ekki til
þátttöku, að upplýsingar skorti og að ekki væru til
staðar ferli og leiðir til að mæla og meta árangur,
• tækifærin fælust meðal annars í að meta nám frá
heimalandi, ná mætti til fólks í þeirra nærumhverfi,
tengslum við notendur Þjónustumiðstöðvar og í
gegnum Vinnumálastofnun og verkefnisstjórn.
Skipulögð var SVÓT-greining meðal 15 ráðgjafa frá Þjónustu-
miðstöð Breiðholts þar sem grunnspurningin var „Hvernig
getum við stutt notendur til að sækja sér aukna menntun?“
Þar kom meðal annars fram að mikilvægt væri að niður-
greiða námskeið og koma til móts við ólíkar þarfir og bak-
grunn notenda. Mikilvægt sé að nýta vel tengsl ráðgjafar
við notendur þjónustunnar en um leið undirstrika að um ein-
stakt tækifæri væri að ræða til að fara aftur í nám eða út á
vinnumarkaðinn.
Staðið var fyrir þremur rýnifundum með íbúum í Breið-
holti:
• 7. október – Blandaður hópur. 9 einstaklingar, inn-
flytjendur, notendur félagsþjónustu, fólk sem lokið
hafði formlegu námi á fullorðinsaldri og fólk sem ekki
hafði lokið formlegu námi.
• 18. nóvember – Hópur innflytjenda. 8 einstaklingar
með annað móðurmál en íslensku, flestir höfðu búið
í landinu lengi, höfðu vald á íslensku og voru virkir í
samfélagsstarfi.
• 27. nóvember – Hópur Íslendinga á vinnumarkaði sem
ekki hafði lokið formlegu námi.
Séu niðurstöður rýnihópanna teknar saman þá kom fram að
lykilatriði væri að nám væri hagnýtt og starfstengt, þ.e. bætti
stöðu þátttakenda á vinnumarkaði. Varðandi hindranir kom
fram hjá öllum að áhugaleysi væri oftast hindrun. En auk
þess kerfislægar hindranir gagnvart þeim sem eru án vinnu,
þ.e. mikilvægi þess að framfærslustuðningur og atvinnu-
leysisbætur féllu ekki niður við að fara í nám. Kostnaður við
námið sem slíkt var sjaldnast hindrun nema ef það hefði í
för með sér tekjutap. Allir voru sammála um mikilvægi þess
að meta starfsreynslu og fyrra nám til styttingar á náminu
og í hópi innflytjenda var íslenskukennsla lykilatriði og sam-
félagsfræðsla ýmiss konar en þar kom meðal annars fram
að mikilvægt væri að skilgreina betur þjónustu og móttöku
Tafla 3 – Menntun nótenda fjárhagsaðstoðar 2012 hjá
þjónustumiðstöð breiðholts.
Menntun Fjöldi notenda Hlutfall %
1. stig barnaskólastig 48 6,82%
2. stig unglingastig 453 64,35%
3. stig framhaldsskólastig 145 20,60%
4. stig viðbótarstig 34 4,83%
5. stig háskólastig 22 3,13%
6. stig doktorsstig 2 0,28%
Samtals 704 100%