Gátt - 2014, Qupperneq 31
31
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
smiðjum í málmsuðu, handverki og myndlist, sem kenndar
hafa verið samkvæmt námskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnu-
lífsins. SÍMEY, ásamt fleiri aðilum hlaut styrk úr Sóknaráætlun
landshluta til eflingar verk- og tæknimenntun á svæðinu.
Sá styrkur var meðal annars nýttur til kaupa á sérhæfðum
tækjum til kennslu á fjölbreyttum tækni- og hönnunarnám-
skeiðum, sem fljótlega verða í boði hjá SÍMEY. Dæmi um nám
sem hefur gengið afar vel hjá SÍMEY er svokallað brúarnám;
félagsliða-, stuðningsfulltrúa- og leikskólaliðabrú. Allt eru
þetta starfstengdar námsleiðir, sem eru metnar til eininga
á framhaldsskólastigi, veita starfsheiti og leiða oft til launa-
hækkunar.
Þegar kemur að skipulagningu hagnýtra námskeiða sem
veita réttindi eða hafa beina tengingu til launahækkunar fer
málið að vandast. Það er mál sem kemur inn á borð fjölda
aðila á borð við fræðsluaðila, samtök atvinnulífsins, stéttar-
félög og atvinnurekendur. Ávinningurinn af því að sækja sér
símenntun verður að vera skýr og sýnilegur en oft á tíðum er
því ekki að heilsa og ekki á færi fræðsluaðila að breyta því
einhliða.
Niðurstöður rannsóknarinnar hafa reynst ákaflega gagn-
legar við skipulagningu á framboði námskeiða hjá SÍMEY og
dýrmætt að ná með þessum hætti til svo fjölmenns hóps.
Hins vegar er ljóst að starfsmenntunarþörf á svæðinu er
síbreytileg og ef vel á að vera þarf að vera hægt að fram-
kvæma rannsóknir af þessu tagi með reglulegum hætti, auk
þess sem niðurstöður rannsóknarinnar gáfu vísbendingar um
að ástæða sé til að rannsaka betur hvernig forsvarsmenn
fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu meta þörf fyrir símenntun og
fleira henni tengt.
Samstarf allra sem að verkefninu komu gekk vel og
verður vonandi haldið áfram með fleiri slík samstarfsverkefni
á komandi árum.
U M H Ö F U N d A N A
Erla Björg Guðmundsdóttir er framkvæmdastjóri hjá
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar. Hún hefur lokið B.Sc.-prófi í
viðskiptafræði og hefur verið viðloðandi fullorðinsfræðsluna
síðan 2001.
Hjalti Jóhannesson er sérfræðingur og aðstoðarfor-
stöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri
(RHA). Hann hefur starfað þar frá árslokum 2000 og hefur
komið að fjölþættum verkefnum en þó einkum rannsóknum
sem tengjast þróun byggðar. Hjalti hefur lokið MA-gráðu í
landfræði frá York háskóla í Toronto og starfaði áður sem
sérfræðingur á Skipulagsdeild Akureyrarbæjar og þar áður
sem framkvæmdastjóri Eyþings – Sambands sveitarfélaga í
Eyjafirði og Þingeyjarsýslum.
Valgeir Magnússon er verkefnastjóri og náms- og starfs-
ráðgjafi hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar á Akureyri.
Hann hefur lokið B.Ed.-prófi í grunnskólafræðum og er
meistaranemi í náms- og starfsráðgjöf, með áherslu á raun-
færnimat, við Háskóla Íslands. Hann starfaði áður hjá Vinnu-
málastofnun en síðustu ár við verkefnastjórn, kennslu og
ráðgjöf innan fullorðinsfræðslunnar.
A b S T R A C T
SÍMEY, lifelong Learning Centre for Eyjafjörður and the
University of Akureyri Research Centre conducted a joint
research on demand for vocational education in the
Eyjafjörður region. The Directorate of Labour for the North-
east Region, the Akureyri Comprehensive College and Ein-
ing-Iðja Trade Union were consulted on the project. In Febru-
ary 2013 a web survey was sent to 3,120 individuals who
had their e-mail address registered at either SÍMEY, the trade
unions or several workplaces. Additionally, a survey was sent
to 137 managers. The survey addressed to the general public
showed that a third does not take part in continuing educa-
tion. Three reasons were most often given for scant partici-
pation: that one could not afford paying for courses, nothing
interesting was being offered in the region, and lack of time
to participate. Requests for practical studies were frequent,
for example, training to improve competence in the present
job. Requests for computer studies were also prominent.
Answers regarding course arrangement were interesting
as most respondents preferred vocational training but aca-
demic studies seem to be in the respondents’ bad books.
Short, practical and vocational courses are in demand, espe-
cially if they involve some certification or involve pay rise.
These findings have already been put to use to change the
study offer at SÍMEY. This cooperation has, therefore, proven
highly successful.