Gátt - 2014, Page 82
82
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
U N d I R b ú N I N G U R
Undirbúningur verkefnisins stóð yfir frá seinni hluta ágúst-
mánaðar 2013 til janúarloka 2014 þegar kennslan hófst. Þar
sem um þróunarverkefni var að ræða var ákveðið að auglýsa
ekki námskeiðið heldur velja inn nemendur með áhuga á vél-
búnaði tölva og að þeir hefðu ágæta námsfærni ásamt góðri
enskukunnáttu.
Við val á nemendum var haft samráð við ýmsa aðila
svo sem Specialisterne, aðstandendur, starfsbrautir fram-
haldsskólanna og ein beiðni um pláss á námskeiðinu kom
frá þjónustumiðstöð í Reykjavík. Auk þess var haft samband
beint við einhverft fólk. Útskýrt var nákvæmlega í hverju
námskeiðið fælist og skrifleg lýsing send til kynningar.
Ákveðið var að nemendur yrðu sex. Sérstök áhersla var
lögð á að undirbúa þá vel fyrir námskeiðið en það er lykilat-
riði fyrir þátttöku einhverfs fólks að vel sé staðið að slíkum
undirbúningi. Áhersla var lögð á að vera í sem mestum
samskiptum við nemendur sjálfa en þar sem aðstandendur
gegndu enn mikilvægu stuðningshlutverki fóru samskiptin
einnig fram með milligöngu þeirra.
Formlegt viðtal var haft við hvern og einn nemanda áður
en námskeiðið hófst og sérstakur viðtalsrammi undirbúinn
og hafður til hliðsjónar. Verkefnastjóri og einhverfuráðgjafi
sáu um að taka viðtölin og fóru þau öll fram í húsnæði Pro-
menntar. Sérstök áhersla var lögð á að kynna húsnæðið vel
og allar aðstæður en vegna óvenjulegrar skynúrvinnslu ein-
hverfs fólks þá þarf það mun lengri tíma til að lesa í umhverfi
sitt og átta sig á staðháttum en aðrir. Í viðtalinu var rætt sér-
staklega um þau skynáreiti sem truflað gætu í umhverfinu og
leiðir til að forðast þau. Nemendur voru einnig spurðir álits
varðandi tilhögun kennslunnar og hvernig þörfum þeirra yrði
best mætt. Allir nemendur fengu skriflega lýsingu á innihaldi
og tímasetningu námskeiðsins. Einnig var haldinn kynningar-
fundur fyrir hópinn í upphafi námskeiðs þar sem kennari fór
yfir kennsluhætti og kynnti aðstæður og aðbúnað nánar.
Hlutverk einhverfuráðgjafa Fjölmenntar fólst fyrst og
fremst í fyrrnefndum undirbúningi, fræðslu og stuðningi við
kennara Promenntar og verkefnastjóra Fjölmenntar ásamt
þátttöku í eftirfylgdinni.
jArÞrúÐUr ÞórhALLsdóttir og KristÍN EYjóLFsdóttir
T Ö L V U V I Ð H A L d o G V I Ð G e R Ð I R F y R I R
N Á M S M e N N Á e I N H V e R F U R ó F I
Algengt er að fólk á einhverfurófi búi yfir sérstakri
hæfni sem ekki hefur fundist farvegur fyrir eða
aðstæður til að virkja. Stór hópur fólks hefur því ein-
angrast heima, oft án atvinnu eða tómstundatilboðs.
Í ljósi þeirrar stöðu var þróunarverkefninu „Tölvuvið-
hald og viðgerðir fyrir námsmenn á einhverfurófi”
hleypt af stokkunum.
Verkefnið var unnið fyrir styrk frá mennta- og
menningarmálaráðuneyti til Mímis-símenntunar, í sam-
starfi við Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmið-
stöð og Promennt fræðslufyrirtæki, sem meðal annars
hefur sérhæft sig í tölvukennslu.
Var þess getið við styrkveitinguna að samstarf
skyldi haft við Specialisterne, stofnun sem vinnur að
því að aðstoða einhverft fólk við að virkja hæfileika sína og komast út á vinnumarkaðinn.
Tilgangur og markmið verkefnisins var að auka þekkingu og færni í tæknigreinum og fjölga námsframboðum
og atvinnumöguleikum fólks á einhverfurófi.
Kristín EyjólfsdóttirJarþrúður Þórhallsdóttir