Úrval - 01.03.1965, Síða 16
14
ÚRVAL
Að stundarfjórðungi liðnum tók-
um við land í fjörunni. Fiskimenn-
irnir hjálpuðu okkur upp úr bát-
unum. Einn af þeim var með gamalt
teppi, sem hann kastaði yfir axlir
afa. Hinir störðu á afa og hristu
höfuðið. Þetta var sú mesta virðing,
sem þeir gátu 'sýnt honum. A1 kast-
aði út steinakkeri sinu og óð í land,
Hann stóð þarna dálítið afsíðis,
stakk hendinni i vasann til þess
að ná í munntóbaksbita. Þegar
hann var búinn að troða honum
í munninn, gekk hann til afa og
hristi hönd hans. Það var allt og
sumt. En hann skildi það jafnvel
og þeir hinir, hvað afi hafði í raun
og veru gert.
Pabbi kom hlaupandi niður í
fjöruna og faðmaði afa að sér.
„Pabbi, þetta var vel af sér vikið!“
hrópaði hann. „En við segjum samt
ekki orð um þetta við hana Marciu.“
Pabbi skalf sem lauf i vindi.
■"SST' .
Stór, feitur karl snýr sér að litlúm dreng, sem sxtur fyrir aftan i
kvikmyndahúsinu, og spyr hann: „Sérðu nokkuð?“
„Ekki baun,“ sagði stráksi.
„Jæja, hafðu augun þá ekki af bakinu á mér,“ sagði karlinn, „og
hlæðu svo, þegar þú sérð mig hlæja.“
Hagfræðingur hjá kvikmyndafélagi einu er nýbúinn að semja fróð-
lega „hagfræðilega" skýrslu um allar enskumælandi leikkonur, sem
orðið hafa „stjörnur" síðustu hálfa öldina. Ef stúlka sýnist vera ljós-
hærð, þrefaldar hún möguleika sína á að ná frægð í kvikmyndum og
heldur betur.
Menn, sem giftir eru ljóshærðum konum, þurfa ekkert að óttast.
Skýrslur um hjónaskilnaði sýna, að yfirgefi eiginmaður ljóshærða eig-
inkonu, er það venjulega til þess að varpa sér í faðm annarrar með
sama háralit og sú fyrri. Menn, sem giftir hafa verið dökkhærðum
konum, halda áfram að sýna svipaðan litasmekk.
Læknar halda því fram, að konur þær, sem eru ljóshærðar frá nátt-
úrunnar hendi, séu sterkbyggðari en þær dökkhærðu. Sértu Ijóshærð-
ur, lesandi góður, hvort sem þú ert karl eða kona, bætir sú staðreynd
5 árum við langlífi þitt.
Scotland Yard hefur á hinn bóginn komizt að þvi, að tvöfalt fleiri
ljóshærðar konur eru viðriðnar glæpamál en þær dökkhærðu. Það
eru til 3 konur í Bretlandi, sem hafa hlotið yfir 50 dóma hver um
sig, — og þær eru allar ljóshærðar! Tannlæknar segja, að þær dökk-
hærðu biti betur. Þær hafa betri tennur! Men Orily
Láttu ekki augað hlaupa yfir eyrað né tunguna eins langt og fæturna.