Úrval - 01.03.1965, Side 30

Úrval - 01.03.1965, Side 30
28 að halda þennan eið minn. En þá bj-osti gæfan við mér. Einu sinni köin ég að stofustúlkunni, þar sem hún var að halda vinkonum sinum heilmikla veizlu í eldhúsinu í al- geru heimildarleysi og voru þær að háma í sig heljarmikla tertu, sem átti að endast heimilisfólkinu í heila viku. Ég sagði ekki orð, horfði bara þýðingarmiklu augna- ráði á vinnukonuna og tertuna til skiptis og labbaði rólegur út. Varla hafði hurðin fallið að stöfum, þeg- ar vinnukonan kom út og fór að lýsa því fyrir mér, hvílíka ofurást hún bæri til þefdýra á öllum aldri, af öllum stærðum og ilmtegundum. Hún fullvissaði mig um, að hún skyldi ekki framar amast við þeim. Og ég lét það gott heita. Við Drusla fórum með krakkana hans Nikka í göngu á hverju kvöldi. Það voru ósköp rólegar gönguferð- ir. Krakkarnir voru alltaf að stanza í öðru hverju spori til þess að tína upp í sig lirfur, sem var helzti réttur þeirra. Einstaka sinnum sprettu þeir þó úr spori og hlupu uppi snigil, sem hafði verið seinn á sér, og eitt sinn veiddi elzti krakkinn hvorki meira né minna en heila hagamús. Japönsku bjöll- urnar máttu biðja fyrir sér, þegar krakkarnir hans Nikka nálguðust. Þeir söfnuðust allir saman undir einhverju eplatrénu og horfðu biðj- andi á mig.Svo hristi ég tréð, svo að bjöllurnar hrundu ofan á þá. Og liljóðin, sem kváðu við, þegar þeir bruddu harða skel þessara kvikinda með mikilli ánægju, minntu á hávaðann á gamlaárs- ÚRVAL kvöld, þegar verið var að skjóta flugeldum á loft. Nágranni okkar, sem átti þýzku fjárhundana, hafði farið í ferðalag og kom ekki heim aftur fyrr en um haustið. Fundum hundanna og fjöl- skyldu Nikka bar því ekki saman fyrr en um haustið. Þá var fjöl- skyldan stödd úti i ávaxtagarði, þegar hundarnir komu þjótandi. Þeir héldu, að þarna hefðu þeir fundið heilan hóp af köttum, og hugsuðu gott til glóðarinnar. Ég hljóp í áttina til þeirra, æpandi af öllum lífs og sálar kröftum. En slíks gerðist ekki þörf. Fjölskyldan hafði sannarlega ekki neina þörf fyrir mína hjálp. Þefdýrin voru svo vön að leika sér við Druslu, að þau sýndu engin óttamerki gagnvart hundunum, sem komu æðandi í átt til þeirra. Nikki yngri horfði fyrirlitlega á hundinn, sem kom æðandi að honum. Svo skellti hann sér letilega á framfæt- urna og miðaði skottinu á hund- inn. Hundurinn æddi beint á hann, og þá var eins og Nikki litli gerði sér grein fyrir því, að hundfíflinu væri fúlasta alvara. Nikki litli horfði steinhissa á hundfíflið, gaf síðan aðvörunarmerki með því að stappa niður fótunum, en þá voru hundarnir báðir komnir að hon- um. Síðan gaf Nikki litli bæði seinni aðvörunarmerkin leiftur- snöggt hvert á eftir öðru, hnipr- aði sig saman, um leið og fremri hundurinn glennti upp ginið til þess að bíta hann, og hleypti af beint upp í hann. Hundurinn tók undir sig ofsa- legt stökk beint í loft upp, líkt og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.