Úrval - 01.03.1965, Side 64

Úrval - 01.03.1965, Side 64
62 ÚRVAL og fáferðugt um veginn. Þá stytti hann sér stundir við að yrkja, og þegar hann loks fannst eftir marg- ar klukkustundir, gerði hann að gamni sínu og lét fjúka í kviðling- um, en þó var fóturinn orðinn bólg- inn mjög með sárum verk. Eins og áður er getið átti Konráð ekki annað systkyna en einn bróð- ur. Þessi bróðir hans dó um tvítugs aldur. KonráS harmaði hann mjög, þvi ákaflega kært var með þeim bræðrunum. ViS jarðarförina flutti KonráS kveðjuorð heima á Hafralæk svo hjartnæm, að fæstir, er viðstaddir voru, gátu tára bundizt. En eigi sást honum sjálfum bregða, svo mik- ið vald hafði hann yfir tilfinning- um sinum. Flest ytri einkenni sterkra til- finninga voru að hans áliti veik- leikamerki, andstæð hinni tignu ró vitsmuna og skapfestu. Eins og hann mætti mótlæti og líkamlegum þjáningum með frá- bærri stillingu, svo tók hann og vonbrigðum og móðgunum með virðulegri ró. ViS reiða menn beitti hann rökræðum eSa þagði, ef vits- munum varð ekki við komið. Aldrei heyrðist hann kvarta yfir kjörum sinum eða láta vonbrigði á sig fá. Hvern mann vildi hann láta njóta sannmælis, talaði ekki illa um andstæðinga sína, og hefni- girni þreifst ekki í huga hans. Þó var hann viðkvæmur fyrir heiðri sínum og mannorði og þoldi illa aS gengið væri á rétt hans. Sjálfur virti hann rétt annarra manna og heiður og bar traust til allra að óreyndu, svo sumum fannst jafnvel jaSra við barnaskap, enda féll honum þungt, ef menn brugð- ust trausti lians. Stjórnmál lét KonráS lítið til sin taka þótt hann hefði þar ákveðnar skoðanir og drægi enga dul á þær. En á þeim vettvangi fannst honum loft lævi blandið og þótti meir gæta sjálfsmetnaðar, sérdrægni og valda- streitu hjá forystumönnum í stjórn- málum en sannrar umhygju fyrir landi og þjóð, auk þess sem sjálfar baráttuaðferðir stjórnmálamanna gátu engan veginn samrýmzt heiðar- leik lians og sannleiksást. Metnað- ur hans stefndi að uppbyggingu eigin þroska og m'anngildis, að samræmi hugsjóna og breytni. Og honum tókst betur en almennt gerist að lifa i samræmi við hug- sjónir sínar. Hin ríka fegurðarþrá hans leit- aði að samhljómi, líkt og hljóm- listarmaður við æfingu á vanda- sömu tónverki. Hver var þá grundvöllur skoðana hans og hugsýna um manngildi, fegurð og siðgæði? Sá grundvöllur var trú hans á ei- Iífa tilveru mannssálarinnar og þroskamöguleika, trú hans á eina allsherjar stjórn í alheimi sem menn eiga að þjóna og geta stutt með vilja sínum og breytni til að skapa fullkomnara mannlíf á jörðu. Iíonráð er horfinn á bak við tjald hinnar miklu leyndar, en djúp- rættar minningar um gáfur hans, heilindi og ljúfmennsku gera hann ógleymanlegan þeim, sem þekktu hann bezt. Steingrímur Baldvinsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.