Úrval - 01.03.1965, Qupperneq 110
108
URVAL
Richard Burton leika. Þessi virð-
ingarvottur var leikurunum ekki
til óblandinnar ánægju.
— Geoffrey Bocca.
Kvöld eitt var ég að mála mig,
þegar leikstjórinn kom inn í bún-
ingsherbergið. „Stattu þig nú vel
í kvöld, gerðu það nú fyrir mig,“
sagði hann, „vegna þess að Gamli
Maðurinn er þarna frammi. .. . á
fyrsta bekk.“ í Bretlandi eiga orðin
Gamli Maðurinn aðeins við einn
mann, og sá maður er Churchill.
Ég fylltist skelfingu. En ég fór samt
inn á leiksviðið og byrjaði að leika
Hamlet.
Ég heyrði lágt muldur af fremsta
bekk, stöðugt muldur. Það var
Churchill, sem mælti setningarnar
af munni fram um leið og ég, og
ég gat ekki hrist hann af mér. Ég
reyndi að tala hratt, ég reyndi að
tala hægt. Stundum töluðum við
til skiptis. Ég sleppti jafnvel úr
setningum. Og i hvert skipti sem
það gerðist, var sem yröi spreng-
ing. Hann kunni leikritið aftur á
bak sem áfram. Hann kann kan-
ski heila tylft Shakespeareleikrita
orði til orðs.
Vejulega tekst ekki að halda hon-
um í leikhúsinu lengur en einn
þátt. Þegar tjaldið féll eftir fyrsta
þátt, gekk ég að gægjugatinu og
horfði fram í salinn. Hann reis upp
úr sæti sínu, og ég hugsaði með
sjálfum mér: Jæja, þar kom að því.
Við erum búnir að missa hann.“
En skyndilega var hann kominn
að tjaldabaki. Hann sagði. „Kæri
Hamlet lávarður, má ég nota sal-
ernið yðar?“ Og hann gerði það.
— Richard Burton.
Hann sýndi þess ekki frekar
merki í ellinni en áður, að hann
ætlaði að vaxa upp og hætta að
vera krakki öðrum þræði. Og ást
hans á dýrum og öllu því, sem lifir,
óx jafnvel enn meira. Stundum
hringdi hann heim til sín og spurði
um líðan hundana sinna eða an-
arra „kæru 'litlu dýranna sinna.“
Hann gaf hitabeltisfiskunum sínum
jafnan að éta, og þetta varð honum
sannkallað ævintýri, sem bjó yfir
sinni sérstöku merkingu og hug-
hrifum. Það upphófust fjörlegar
borðræður og heimspekilegar
vangaveltur uin andlegt atgervi
sjávardýra. Fiskunum var ekki að-
eins gefið að éta. Þeir fengu um
leið ríflegan skammt af gæluyrðum
og blíðu.
Sir Winston var hamingjusamur
maður, hamingjusamur í störfum
sínum og hamingjusamur heima
lijá sér. Ilann spilaði „6-pakka bez-
ique“ tímunum saman við lafði
Churchill og var ánægður eins og
lítill krakki í hvert skipti er hann
vann. í garðinum sinum ræktaði
hann sjaldgæf blóm og hlúði að
þeim á allan hátt, þangað til hann
áleit þau vera orðin nógu falleg
til Jiess, að hann gæti gefið kon-
unni sinni þau.
— Geoffrey Bocca.
Þ. 9. apríl árið 1963 gerði
Kennedy forseti Sir Winston
Churcliill að fyrsta heiðursborgara