Úrval - 01.03.1965, Blaðsíða 129
FJÖGUR ORÐ
127
bókfærzlunni og inaðurinn hennar
mundi lenda í fangelsi. Hún gat
ekki sofið, en gekk um gólf dag
og nótt. Þrátt fyrir það að við end-
urskoðunina reyndist allt í lagi,
tókst samt ekki að sannfæra hana
um, að hún gæti verið áhyggju-
laus. Hún missti alla matarlyst og
léttist um 10 kíló á þremur vikum.
Að lokum gerði hún tilraun til að
fyrirfara sér og var henni þá kom-
ið til mín. Eftir nokkurra vikna
geðlæknismeðferð náði hún fullum
bata.
Þessi þrjú dæmi sýna, hversu fjöl-
breytileg einkennin geta verið við
þunglyndi, og hversu mörgum
myndum það getur birzt i. Það er
þvi sjálfsagt að læknir sker úr um
sjúkdómsgreininguna, en hvenær
sem ættingjar sjá eitt af hinum fjór-
um höfuðeinkennum, ættu þeir að
íhuga, hvort eklci gæti verið um
alvarlegt þunglyndi að ræða. Og
séu öll fjögur einkennin fyrir hendi,
er nauðsynlegt að leita læknis þegar
i stað.
Öllum getur oss stöku sinnum
orðið þungt í skapi út af áhyggjum
daglegs lífs, En eftir einn eða tvo
daga er því fargi of oss létt, er at-
hygli vor beinist að öðrum hlutum.
Hitt er einnig eðlilegt að vér kenn-
um dapurleika, er vér verðum fyrir
þungu áfalli í lífinu, svo sem dauða
einhvers ástvinar.
Margir kunna þá list, að leyna
tilfinningum sínum. Af ótta við
hvað aðrir kunni að hugsa, forð-
ast þeir að láta í Ijós sínar raun-
verulegu hugsanir, jafnvel við nán-
ustu vandamenn sína. í stað þess
setja þeir upp falskan ánægjusvip
og neita að nokkuð sé að. í slíkum
tilvikum koma þessi fjögur ein-
kenni sér sérstaklega vel, því að
þeim er ekki hægt að leyna.
Stöku sinum kemur fyrir, að
þeim, sem áður hefur verið yfir-.
kominn af þunglyndi, virðist allt
í einu vera orðið létt í skapi. Hon-
um virðist hafa batnað á einni
nóttu. Þá er mjög mikil hætta á
ferðum. Það tálcnar venjulega, að
hann hefur tekið ákvörðun um að
fyrirfara sér, og sér framundan
skjóta lausn frá þjáningum sínum.
Leitið þá læknis samstundis!
Enginn er algerlega ónæmur fyrir
þunglyndi. Vel metnum, samvizku-
sömum og metnaðargjörnum þjóð-
félagsborgurum hættir oft til alvar-
legs þunglyndis. Sjúkleiki þeirra er
ekki vottur um veikleika, heldur af-
leiðing af sérstöku andlegu fargi
á vissa tegund lyndiseinkunnar.
Sem betur fer leiðir viðeigandi með-
ferð til fullkomins bata í 9 af hverj-
um 10 tilfellum á 4—8 vikum. Oft
fæst fullur bati á mikið skemmri
tíma, ef hættumerkjunum er gef-
inn gaumur fljótlega.
Ein bezta aðferðin til þess að fá aðra á þitt mál.... er sú að nota
eyrun til þess.... með þvi að hlusta á þá.
Dean Rusk