Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 20

Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 20
18 inn fyrst, voru í honum 200 ein- staklingar, en þeim fjölgaði á stutt- um tíma upp í 700, og fór þá að þrengjast um hjá þeim. Þetta var fyrir níu árum. Dag nokkurn snemma réðst ungur uppreisnarapi, sem hét Hoshi, á gamla forsetann, beit hann og sló. Og að áliðnum þeim degi var uppreisnarseggurinn lagður af stað burt með lið sitt, 250 apa. Þessi hópur tók sér yfirráða- svæði annars staðar, hafði sterkar varnir við landamerkin, og átti þar í illdeilum við innþrengjendur nærri daglega. Þetta gerðist 1959. Um líkt leyti gerðist það, að anm ar api, mesta kænskutól, sem lifað hafði út af fyrir sig þangað til, fór að leita eftir samskiptum við landa- mæraverði hins fyrrnefnda hóps, og reyndi að safna að sér „áhangend- um“ meðal þeirra. Svo var það 1963, að hann lagði upp með uppreisn- arlið 165 apa. Enn er hann forseti þeirra, og hann er atkvæðaforseti, og mikill fyrir sér. Hann er einkar tryggur í hjúskap sínum, og mætti vera fyrirmynd karlfólks meðal manna að því leyti. Annars eru ap- ar nokkuð fjöllyndir í ástum og líkjast að því leyti mönnum, einnig hvítum og kristnum. AÐ KENNA APABÖRNUM SIÐI APA. Tvö fyrstu árin er apabarn látið sjúga móður sína og allt látið eftir því. Á þeim tíma lærir það að tala. Tveggja ára er það altalandi, kann þá 37 orð, eða „hljóð‘“ (Átta ára er það fullorðið). En reyndar er apa- málið miklu fullkomnara en virð- ast má að orðfæðinni, því úr þess- ÚRVAL um 37 „orðum“ má gera margar samsetningar. Apabarn lærir af því að apa eftir öðrum. Þegar Imo, kvenapi nokkur var þriggja missera gerði hún nokk- uð sem enginn api af þessari tegund hafði nokkru sinni gert. Hún tók upp kartöflu, fór með hana út að rennandi læk, og reyndi að þvo af henni sandinn. Karlapi nokkur tók eftir þessu og fór að gera eins, og síðan móðir Imo. Nú gera þeir þetta flestir, þeir þvo kartöflur sínar áð- en þeir éta þær. Sumir dýfa þeim í saltvatn, því þeim líkar vel bragð- ið. Aparnir byrjuðu á því að tína upp eitt hveitikorn í einu, svo seinlegt sem það var. En Imo lét ekki að sér hæða. Hún tók upp hnefafylli í einu, og fylgdi sandurinn með, en þá gekk hún sig að næsta læk og þvoði sandinn úr korninu. Sandur- inn sökk, en hveitið flaut, og Imo gæddi sér á þessu með mikilli kæti. Sex árum síðar, 1962, voru 19 af þessum öpum farnir að gera hið sama, og nú gera það flestir í hópn- um, eða meira en helmingur. En hið furðulegasta af öllu er þó það, að nú skuli aparnir vera búnir að læra að synda. Árið 1959 þorði enginn þeirra að fara út í vatn. Svo byrjaði einhver að henda hnet- um út í lónin á grunnu. Einn og einn api fór þá að vaða út í til þess að ná í hneturnar, en fór afar var- lega í fyrstu. Eftir nokkra daga bættust fle'ri við og svo mestallur hópurinn. Nú er svo komið að apa- börnin eru alltaf að busla, svamla og synda. Þegar heitast er, þá busla þeir ákaflega, steypa sér fram af
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.