Úrval - 01.12.1968, Blaðsíða 29
SHF.LLEY OG MARY GODWIN
27
vesæll vegna fjarvistanna. Ég fyllist
óróleika og ofsa, jafnvel er mér verð-
ur aðeins hugsað til þess að við skul-
um vera aðskilin. En þetta er lífs-
nauðsynlegt, og við megum ekki
heldur sýna óvarkárni á okkar
strjálu fundum. Minnstu þess, að ég
er glataður, ef fólki tekst að fylgja
þér eftir á minn fund. Ég reika eirð-
arlaus um. Ég get ekki lesið og jafn-
vel ekki skrifað. En þetta mun brátt
taka enda. Ég ætti ekki að smita
mina eigin Mary af örvinglun minni
og vonleysi. Hún hefur næga ástæðu
til að finna til óróleika og þarfnast
því huggunar frá minni hendi.“
Og hún lauk einu bréfi sínu til
hans á þennan hátt:
„Góða nótt, ástin mín, á morgun
mun ég innsigla þessa blessunar-
kveðju með kossi á varir þínar. Ást-
kæra góða vera, faðmaðu mig að þér
og þrýstu þinni eigin Mary að hjarta
þínu.... Ó, við verðum að hittast
bráðlega, því að ég er þreytt á þessu
ömurlega lífi, en ... ó er ástin okkur
ekki nóg. . . . ? Vissulega bý ég yfir
rinlægri ástúð gagnvart mínum eig-
in Shelley.
En góða nótt, ég er hræðilega
þreytt og svo ósköp syfjuð. Ég þori
að veðja 10 á móti 1, að mig mun
enn dreyma um þig, þegar þú hefur
alveg gleymt mér, slæmi strákur.
Taktu mig í faðm þér . . . einn
koss, jæja, það er nóg. Á mörgun.“
Og mitt í öllum vandræðum þeirra
barst þeim fregn um, að Harriet
hefði alið son. Og Mary komst nú
einnig að því, að hún mundi einnig
brátt verða móðir.
Um áramótin dó svo afi Shelleys,
hinn aldni Sir Bysshe, og þar með
voru fjárhagsvandra^ði þeirra úr
sögunni, þar eð ákvæði voru um það
í erfðaskránni, að Shelley Skyldi
hljóta talsverðar árstekjur að erfð-
um. En í kjölfar þessarar mikiu
heppni fylgdi einnig ógæfa, því að
barn Mary fæddist fyrir tímann, og
það dó innan mánaðar eftir fæðing-
una. Claire var farin að sýna ýmis
merki þess, að hún væri einnig ást-
fangin af Shelley. Nú tókst þeim að
fá hana til þess að flytja burt og
taka á leigu herbergi hjá ekkju
einni í Lynmouth og leyfa þeim
þannig að vera einus saman í fyrsta
skipti. Varð þessi breyting til þess
að draga nokkuð úr sorg þeirra.
Shelley gerði nú ráðstafanir til
þess, að Harriet fengi vissan lífeyri,
þegar honum hafði nú áskotnazt
þessi nýi auður. Þar að auki greiddi
hann allar skuldir Godwinhjónanna,
þótt þau fengjust ekki til þess að
sættast við þau Shelley og Mary.
Þau Mary tóku síðan á leigu lítið
hús í útjaðri Windsorskógar, og þar
vann hann næsta árið að nýjum bók-
menntaverkum. Jafnframt því héldu
þau Mary áfram námi sínu í grísku
og latinu, og á kyrrlátum kvöldum
gengu þau saman um stíga og rjóður
skógarins. Og í byrjun janúar fæddi
Mary son, og hlaut hann nafnið
William.
En kuldalegt viðmót og algert af-
skiptaleysi fyrri vina þeirra hélt
samt áfram að þjaka þau Shelley og
Mary. Þar að auki áleit hann, að
bókmenntaverkum hans væri nú
tekið af óeðlilega óhagstæðri gagn-
rýni. Því ákvað hann nú að yfir-
gefa England að fullu. í stuttu bréfi
til Godwinhjónanna fullvissaði hann