Úrval - 01.12.1968, Side 58

Úrval - 01.12.1968, Side 58
56 vanþróuðum löndum. Lægstu töl- urnar eru auk Svíþjóðar á íslandi (13.7), í Finnlandi (14.2) og í Hol- landi (14.7). Bandaríkin eru númer 23 á skránni, en þar er hlutfallstal- an 22.1. ÍSLENZKAR OG NORSKAR KONUR LIFA LENGST Væntanlegur meðalaldur þeirra sem nú eru að fæðast er hæstur meðal íslenzkra stúlkubarna, en þær geta að meðaltali reiknað með að lifa 76 ár. í Noregi er talan lítið eitt lægri, en þar geta nýfæddar stúlkur búizt við að lifa að meðal- tali rúm 75 ár. Sama er að segja um Frakkland, Holland, Svíþjóð og Úkraínu. Nýfæddir drengir eiga í vændum lengstan meðalaldur í Svíþjóð eða 71.6 ár. Næst koma Danmörk, ís- land, ísrael (Gyðingar þar búsettir), Holland og Noregur, en í öllum þessum löndum er væntanlegur meðalaldur nýfæddra sveinbarna 70 ár eða lítið eitt meira. Stytzti væntanlegur meðalaldur nýfæddra meybarna er í Efra-Volta (31.1 ár) og nýfæddra sveinbarna í ÚRVAL Gabon (25 ár). Þessar tölur eru frá tímabilinu 1960—61. Á nokkrum svæðum hefur verið gerður sögulegur samanburður allt aftur til síðustu aldamóta. Á flest- um þessara svæða hefur meðalaldur lengzt um 20—30 ár. Mestur árang- ur hefur náðst á eynni Puerto Rico, en þar hefur meðalaldur lengzt um 40 ár á tímabilinu 1903—1961. GIFT FÓLK LIFIR LENGUR Það á við um alla heimsbyggðina, að giftir karlar og konur hafa að meðaltali lægri dánartölu en ein- hleypingar, ekkjur, ekkjumenn eða fráskilið fólk (samanburðurinn var gerður hjá sama kyni og í sömu aldursflokkum). „Demographic Yearbook“ hefur líka að geyma yfirlit yfir dánaror- sakir i 127 löndum. Hjartasjúkdóm- ar og/eða krabbamein eru algeng- ustu dánarorsakir í öllum þeim 33 Evrópulöndum, þar sem upplýsing- ar voru fáanlegar, og sömu sögu er að segja um Ástralíu, Kanada, Bandaríkin, ísrael, Hong Kong, Japan, Kúbu, Nýja Sjáland og Uru- guay. Ung brúður, sem ég hafði gefið bók E'mily Posts um umgengisvenjur í brúðkaupsgjöf, þakkaði mér innilega fyrir hana, þegar ég hitti hana að nokkrum tíma liðnum. Og hún bætti því við, að hún hefði alls ekki vitað, hvernig hún ætti að hefja heimilishaldið, hefði hún ekki haft bókina við höndina. Mér fannst þetta nú kannske helzt til djúpt í árinni tekið, þangað til hún bætti við: „Sko, ég las bara öil þau fyrirmæli, sem fyrirmyndar- húsmóðir á að gefa vinnukonunni, eldabuskunni og þjóninum, og fram- kvæmdi svo öll fyrirmælin sjálf Frú Thomas 0‘Leory.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.