Úrval - 01.12.1968, Qupperneq 129

Úrval - 01.12.1968, Qupperneq 129
TIL SÍÐASTA HJARTSLÁTTAR 127 af' svölum sjúkrahússins. Mér varð hugsað til þess, hversu dásamlegt þetta fólk væri, þetta fólk af ýms- um kynþáttum, sem byggir Höfða- borg. Ég var innilega stoltur af að teljast samborgari þessa fólks. Við ókum hægt eftir þjóðvegin- um út úr borginni, fram hjá ýmsum byggingum, sem ég þekkti svo vel. Fyrir sjónir mér bar sýnir, og að vitum mínum barst ilmur, sem ég hafði haldið, að ég ætti aldrei að verða aðnjótandi framar. Það var næstum komið haust, en trén og grasið í hlíðum Borðfjallsins var enn í sínum græna skrúða. Húsin, sem við ókum framhjá, virtust al- veg nýmáluð og garðarnir eins og þeir hefðu verið vökvaðir þá um morguninn. Svo komum við til Higbury. Loksins var ég kominn heim aftur, umkringdur mununum, sem við Eileen höfðum sankað að okkur um árabil, myndunum, sem mér þótti svo vænt um, bókunum mín- um og öllum þeim dýrmætu mun- um, sem mynda í sameiningu heim- ili. Það var kominn hádegisverðar- tími, þegar við komum heim. Vinnustúlkan okkar, hún Katie, hafði útbúið sérstaka hátíðarmál- tíð, og hún var himinlifandi yfir því, að ég skyldi vera svangur. Hún dekrað við mig eins og læða við kettlingana sína, og þetta var líka bezta máltíðin, sem ég hef nokkurn tíma fengið. Á eftir lagðist ég í rúmið mitt til þess að fá mér lúr og teygði værðarlega úr mér. Unaðs- leg þreytukennd hríslaðist um mig. „Eileen,“ sagði ég, „heimurinn er dásamlegur, „hann er bara svo andskoti dásamlegur!“ Og eftir nokkur augnablik var ég sofnaður. TIL HINZTA HJARTSLÁTTAR Síðan hefur lífið haldið áfram að vera dásamlegt. Ég minnist eink- um tveggja atburða. Föstudaginn 5. apríl 1968 héldum við Eileen upp á 32. giftingaraf- mælið okkar. Við snæddum kvöld- verð í ró og næði heima í íbúðinni okkar, bara við Eileen, bróðir hennar og eiginkona hans. Og á eftir skáluðum við í kampavíni fyrir heppni okkar og hamingju. Hve þessi giftingarafmælisdagur var ólíkur þeim 31. Þá var ég í sjúkrahúsinu eftir annað hjarta- slagið, og læknarnir höfðu þá skýrt Eileen frá því, að það væri engin von um bata mér til handa. Og núna leit út fyrir, að ég ætti auð- ugt og heilbrigt líf framundan, og hjónaband okkar átti sér nú fram- tið ekki síður en fortíð. Annar stórviðburðurinn í hinu nýja lífi mínu gerðist um 6 vikum eftir að ég kom heim aftur. Það var, þegar ég ók bílnum mínum í fyrsta skipti eftir margra mánaða hlé. Eftir það ók ég honum alltaf þegar ég fór til sjúkrahússins til hinna reglulegu skoðana. Er ég ók út af bílastæðinu við sjúkrahúsið einu sinni, sá ég ein- hvern ganga hratt niður eftir göt- unni.. Ég stanzaði við. hlið manns- ins og bauð honum far. „Eigum við samleið?" spurði hann. Ég virti fyrir mér úfna hárið og innilega brosið. Þá fyrst gerði ég
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.