Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Side 8
um starfsendurhæfingarferla einstaklinga
frá upphafi til enda og komast fagaðilar í
raun ekki hjá því að hafa heildarsýn á málin
út frá ICF hugmyndafræðinni. Öll mál eru
síðan flokkuð eftir þyngd og eðli og þurfa
úrræðakaup að taka mið af þeirri flokkun.
Þannig er tryggt að keypt úrræði séu ætíð
við hæfi og aldrei flóknari eða dýrari en
nauðsynlegt er.
Eðli málsins samkvæmt hefur innbygging
ICF hugmyndafræðinnar í upplýsingakerfið
okkar því stuðlað að mikilli hagræðingu
í rekstri og markvissari vinnubrögðum
fagaðila innan VIRK. Við erum þó hvergi
nærri hætt í þróunarstarfinu. Þegar þetta
er skrifað er t.d. unnið að því að straum-
línulaga mikilvæga þjónustuferla hjá VIRK
með það að markmiði að bæta og hagræða
í þjónustunni. Ýmsar greinar hér í ársritinu
gefa nánari mynd af því faglega starfi sem
unnið er hjá VIRK alla daga svo sem grein
Jónínu Waagfjörð um notkun ICF hjá VIRK
auk ýmissa greina um mat, rýni, ráðgjafa,
atvinnulífstengingu og úrræði.
Ávinningur
Ávinningur af starfsemi VIRK verður ekki
mældur með útgjöldum eða tekjum sjóðsins.
Ávinningurinn felst í því að einstaklingar ná
að verða virkir þátttakendur í atvinnulífinu
og ná þannig auknum lífsgæðum og, oft
á tíðum, auknum tekjum. Ávinningurinn
kemur einnig fram í sparnaði hjá launa-
greiðendum, lífeyrissjóðum og ríki. VIRK
hefur unnið að því að þróa marga og
mismunandi árangursmælikvarða á starfið
og hér í ársritinu er að finna upplýsingar
um hluta þessara mælinga. Þar kemur m.a.
fram að um 86% af þeim einstaklingum sem
luku þjónustu á árinu 2023 voru í vinnu,
atvinnuleit eða í námi við útskrift.
Ráðgjafafyrirtækið Talnakönnun hf. hefur
einnig lagt tryggingastærðfræðilegt mat á
ávinning VIRK út frá tilteknum forsendum
undanfarin 8 ár og niðurstaðan fyrir árið
2023 er 19,4 milljarða króna ávinningur.
Hér er um að ræða reiknaða tölu út frá til-
teknum hóflegum forsendum. Skýrslur
Talnakönnunar er að finna á vefsíðu VIRK
www.virk.is.
Ánægðir þjónustuþegar
VIRK býður öllum einstaklingum sem ljúka
þjónustu upp á að svara þjónustukönnun og
þannig er fylgst með viðhorfi einstaklinga
til þjónustunnar á hverju ári. Á árinu 2023
var einnig ákveðið að fá utanaðkomandi
aðila til að framkvæma þjónustukönnun
Eðli málsins samkvæmt hefur
innbygging ICF hugmyndafræðinnar
í upplýsingakerfið okkar því stuðlað að
mikilli hagræðingu í rekstri og markvissari
vinnubrögðum fagaðila innan VIRK.
meðal þjónustuþega VIRK á árunum 2022
og 2023. Gallup tók þetta verkefni að sér
en þeir gerðu svipaða könnun á þjónustu
VIRK á árinu 2017. Af þeim sem svöruðu
þessari könnun hjá Gallup sögðu 82%
að þjónusta og úrræði á vegum VIRK hafi
aukið starfsgetu þeirra og á mynd 2 má
sjá hvernig einstaklingar sem tóku þátt í
þessari könnun mátu starfsgetu sína og
andlega og líkamlega líðan bæði í upphafi
og lok þjónustu borið saman við niðurstöður
sambærilegra mælinga í þjónustukönnun
Gallup á árinu 2017.
Ánægjulegt er að sjá að í öllum þessum
þáttum og í raun í öllum niðurstöðum
könnunarinnar þá er meiri ánægja með
þjónustu VIRK á árinu 2023 en var árið
2017 þó niðurstöðurnar hafi bæði árin
verið mjög góðar. Helstu niðurstöður þess-
arar þjónustukönnunar Gallup er að finna í
samantekt hér aftar í ársritinu.
Atvinnutenging VIRK
Atvinnutenging VIRK efldist mikið á síðasta
ári og sú þróun mun halda áfram á þessu
ári. Um níu sérhæfðir atvinnulífstenglar
eru starfandi hjá VIRK í Borgartúni 18
auk þess sem þrír atvinnulífstenglar eru
starfandi á landsbyggðinni; á Akureyri,
Selfossi og í Reykjanesbæ. Auk þessa þá
eru allir ráðgjafar VIRK einnig að sinna
verkefnum á sviði atvinnutengingar fyrir
sína þjónustuþega. Þeir einstaklingar sem
þurfa á þjónustu atvinnulífstengla að halda
eru oft á tíðum þeir sem ljúka þjónustu með
skerta starfsgetu, hafa ekki starf til að snúa
til baka í og þurfa sérstakan stuðning út á
vinnumarkaðinn.
Mynd 2
Starfsgeta, líkamleg og andleg heilsa við upphaf og lok þjónustu
hjá VIRK árin 2017 og 2023
Á kvarðanum 0-10 þar sem 0 er lægsta og 10 hæsta
7
6
5
4
3
2
1
0
2017 2023
Í upphafi
þjónustu
Í upphafi
þjónustu
Í upphafi
þjónustu
Við lok
þjónustu
Við lok
þjónustu
Við lok
þjónustu
Starfsgeta Andleg líðan Líkamleg líðan
2,2
4,3
2,8
5,6
3,2
4,9
2,2
5,9
2,8
6,4
3,6
6,0
8 virk.is