Ársrit um starfsendurhæfingu - 2024, Page 10
í þjónustu VIRK með annað þjóðerni en
íslenskt og á fyrstu mánuðum ársins 2024 er
þetta hlutfall 13%. Um er að ræða tvöföldun
frá árinu 2020. Þetta má m.a. sjá á mynd 3.
Mynd 4 sýnir síðan hlutfallslega skiptingu á
fjölmennustu hópunum. Eins og sjá má þá
eru langflestir þjónustuþegar VIRK, sem eru
með erlent þjóðerni, frá Póllandi.
Gera má ráð fyrir að innflytjendum muni
fjölga talsvert í þjónustu VIRK á næstu
árum ef sú þróun heldur áfram sem sjá
má á mynd 3. Einstaklingar sem koma til
landsins þurfa ekki endilega á starfsendur-
hæfingarþjónustu að halda í upphafi en eftir
því sem innflytjendum fjölgar hér á landi þá
má gera ráð fyrir að þeim muni einnig fjölga
í starfsendurhæfingu.
VIRK hefur gripið til ýmissa ráðstafana til
að tryggja faglega og góða þjónustu við
þessa einstaklinga. Þeim stendur t.d. öllum
til boða túlkaþjónusta hjá ráðgjöfum VIRK
og eins hefur VIRK samið við þjónustuaðila
um sérhönnuð úrræði til að mæta þörfum
þessara einstaklinga. Þessi þróun mun
halda áfram m.a. í samstarfi við fleiri þjón-
ustuaðila.
Einstaklingar af erlendum uppruna
sem lokið hafa þjónustu hjá VIRK hafa í
mörgum tilfellum náð góðum árangri. Ef
skoðaðar eru tölur fyrir tímabilið janúar
2021 – febrúar 2024 þá komu einungis
12% stöðugilda þessara einstaklinga inn
með laun í veikindum á vinnumarkaði en
við útskrift eru 42% stöðugilda með laun á
vinnumarkaði.
Starfsendurhæfing, tími og
árangur
Bæði reynsla og rannsóknir sýna fram
á mikilvægi réttra og viðeigandi tíma-
setninga þegar um er að ræða starfsendur-
hæfingarþjónustu. Ef vandi einstaklinga
er margþættur og flókinn þurfa þeir oft
starfsendurhæfingu til að komast á vinnu-
markað í kjölfar veikinda og slysa. Þá er
mikilvægt að það líði ekki of langur tími
frá því að einstaklingur missir vinnugetu
þar til hann fær viðeigandi starfsendur-
hæfingarþjónustu. Bara það að vera frá
vinnumarkaði er áhættuþáttur í sjálfu sér
og eftir því sem lengri tími líður þá minnka
líkurnar á því að viðkomandi komist aftur í
vinnu.
Hér þarf samt sem áður að hafa í huga að
það er sjaldan árangursríkt að beina ein-Mynd 5
Útskrifast með laun á vinnumarkaði í lok þjónustu
Útskrifast EKKI með laun á vinnumarkaði í lok þjónustu
Framfærsla í upphafi og lok þjónustu VIRK eftir framfærslu
í upphafi þjónustu
Laun í veikindum í upphafi þjónustu Önnur framfærsla en laun í veikindum í upphafi
þjónustu
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
80%
55%
20%
45%
Mynd 3
Hlutfall einstaklinga sem hefur komið í þjónustu VIRK
2020-2024, með annað þjóðerni en íslenskt
15%
12%
9%
6%
3%
0%
6%
8% 8%
11%
13%
2020 2021 2022 2023 2024 (jan-mars)
Mynd 4
Hlutfall frá mismunandi þjóðum
40%
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Pólland
Litháen
Bretland
Lettland
Sýrland
Þýskaland
Spánn
Portúgal
Taíland
37%
4% 4% 3% 3% 3% 3% 2%
5%
10 virk.is