Úrval - 01.02.1971, Síða 45
^☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆'
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆$
Svona er lífið
> i': fv 'Ct'C? fy fy fr f? -h i-c£; t{ ú ú ú m' 'j-v v'v í'< tV ú ú ~H~ f? f? f? ?? •'> ft t< fy fr-fr i.rU-CHvbi’ii? t? f? ft v< ?y ?? i: it i< f<
Námsstjóri var að heimsækja
skóla í þorpi nokkru, og þegar hann
öllum á óvart var að nálgast skóla-
húsið, varð hann var við hávaða og
mikið tal í einni kennslustofunni.
Þótti honum kveða svo rammt að,
að hann þyrfti að grípa í taumana.
Hann læddist því inn á ganginn og
beið fáein andartök við hurðina, en
snaraðist svo inn og greip í öxlina
á einum af stóru drengjunum, sem
þar að auki virtist tala allra mest,
sveiflaði honum fram fyrir, enda
vel að manni, stillti honum upp við
vegg og sagði með þjósti:
— Til þess að kenna þér að haga
þér alfnennilega skaltu standa þarna
það sem eftir er tímans og stein-
þegja.
Nú var allt orðið hljótt í kennslu-
stofunni, svo að hann hugðist líta
þangað inn aftur, en fór sér samt
að engu óðslega. En þá opnuðust
dyrnar varlega og út kom sýnilega
einn af litlu drengjunum. Hann
nálgaðist námsstjórann varlega,
bauð góðan dag og sagði svo mjög
kureislega:
— Getum við ekki fengið kenn-
arann okkar bráðlega aftur?
Tveir menn hittust í veizlu og
kynntu sig;
— Nafn mitt er Jón Jónsson,
heildsali, niðursuðuvörur, kjöt og
flesk.
Hinn svaraði um hæl: — Það
gleður mig að kynnast yður og ég
vona að þér heimsækið mig einhvern
tíma, nafn mitt er Sigurður Sigurðs-
son, fangavörður, vatn og brauð.
Maður nokkur datt út af bryggju.
Hann drakk mikinn sjó og var flutt-
ur meðvitundarlaus í sjúkrahús.
— Við verðum að nota „munn við
munn“ aðferðina, sagði yfirhjúkr-
unarkonan.
Þá opnaði maðurinn annað aug-
að, benti á laglegustu hjúkrunar-
konuna í hcpnum og sagði: — Þessi
fyrst.
Hann: Kæra ungfrú! Ég elska
yður.
Hún: En ég er bláfátæk.
Hann: Ég var ekki búinn að tala
út. Ég átti eftir að segja: Ekki.
Hún: Já, ég hélt það, og þess
vegna var ég að reyna yður, en ég
á 6 milljóna arf eftir hann föður
minn.
Hann: Þér grípið alltaf fram í fyr-
ir mér, svo að ég get ekki lokið máli
mínu. Ég ætlaði að segja: ekki vegna
auðsins.
Hún: Þá er ég ánægð, því að þetta
var bara spaug með milljónirnar.