Úrval - 01.11.1971, Side 17
CHARLES LINDBERGH AFTUR í SVIÐSLJÓSIÐ
Í5
þegar sést til hans á flugferðum,
þá reynir hann yfirleitt að láta lítið
fyrir sér fara, og notar oftast dul-
nefni á hótelum. Flugmenn og flug-
áhafnir um allan heim kannast auð-
vitað við hann, og eigi ósjaldan býð-
ur flugstjóri honum fram í stjórn-
klefann, þar sem hann þá spjallar
við flugmennina um flugtækni,
svarar spurningum og veitir holl-
ráð.
Á KROSSGÖTUM
Ég hlustaði dag einn á spjall hans
við Harlan A. Gurney, flugstjóra,
sem nú er kominn á eftirlaun, en
þeir hafa verið góðir vinir frá því
snemma á 3. áratugnum. Þeir töl-
uðu um bíræfni þá, sem þeir sýndu
af sér á bernskuárum flugsins fyrir
hálfri öld, og þeir horfðu yfir Los
Angeles svæðið efst ofan úr San
Fernando-hæðunum, og þá sagði
Lindbergh með þunga sorg í rómn-
um: „Þarna sérðu Los Angeles, eina
allsherjar, heljarstóra kvoðu eða
hrúgald bygginga sem dreifast út
um allar hæðir. Það er ekki mjög
langt síðan, það var árið 1927, að
þessi borg var tiltölulega lítil og
fögur borg, og í nágrenni hennar
voru appelsínutré og sítrónuviður.
Núna flæðir hún eins og hraun-
straumur upp og yfir gilin út um
hæðirnar —- milljónaborg haldin
æði.“
Lindbergh veit, að ef við eigum
að vernda umhverfi okkar, halda
því við, þar sem ástandið er full-
nægjandi, og bæta það sem miður
hefur farið, þá þurfum við peninga
— peninga ríkisins, áreiðanlega
billjónir dollara. „Aðeins fáir meta
frelsi einstaklingsins meir en ég
geri, en ég verð að segja, sannar-
lega óviljugur, að ríkisstjórnin
verður að taka hér í taumana, hafa
eftirlit með — nei mér geðjast ekki
að „eftirliti“, fremur leiðbeina og
benda á hvernig við notum um-
hverfi okkar. Sjálfboðastörf ein-
staklinga eru stórkostleg — það
ætti að hvetja til slíkrar starfsemi
— en það nægir bara ekki til að
mæta þörfum þjóðarinnar.
„Sumir segja að við höfum ekki
efni á því,“ bætir hann við, „ég held
hins vegar ,að útvíkkun okkar
menningar sé nú svo ör að hinn
kosturinn sé aðeins ragnarök."
Miklir erfiðleikar hafa dunið yfir borgina Seattle vegna mikils sam-
dráttar í flugvélaiðnaðinum, en har eru miklar flugvélaverksmiðjur.
Fjöldi fólks yfirgefur nú borgina og leitar sér að vinnu annars staðar.
E'n allir hafa sarnt ekki enn glatað kímnigáfunni þrátt fyrir erfiðleik-
ana. Tveir ungir kaupsýslumenn settu upp risavaxið tilkynningarskilti
við þjóðveg núrner 99, og á því gat að líta þessa orðsendingu til þeirra,
sem óku út úr borginni: SÁ SEM VERÐUR SlÐASTUR TIL ÞESS AÐ
YFIRGEFA SEATTLE, E’R BEÐINN AÐ SLÖKKVA LJÓSIN.
UPI.