Úrval - 01.11.1971, Side 19

Úrval - 01.11.1971, Side 19
HANN LIFÐl MARTRÖÐ í SJÖ MÁNUÐI 17 verið sendur til Uruguay eftir sér- stakri beiðni þarlendra stjórn- valdna. Starf hans í Uruguay var hliðstætt því sem hann hafði unnið í 21 landi á undan: að hjálpa, hjálpa fátækri þjóð sem saman stendur af þrem milljónum manna að bæta landbúnaðartækni sína. Sem hann ók til vinnu sinnar þennan morgun, hafði Fly í huga aðvörun þá er bandaríska sendiráð- ið hafði gefið öllum Bandaríkja- mönnum í landinu. Þrír bandarískir borgarar höfðu sætt árásum í vik- unni á undan af hendi innlendra skæruliða, og voru þeir úr flokki sem allur heimurinn kannast nú við undir nafninu Tupamaros. Tveir Bandaríkjamannanna þriggja, sem ráðist var á, komust undan, en hinum þriðja, Daniel A. Mitrione, lögreglusérfræðingi frá Indiana, sem eins og Fly vann að ráðgjafastörfum á vegum stjórnar- innar, hafði verið rænt. Einnig höfðu Tupamaros-skæru- liðar rænt konsúlnum Aloysio Dias Comide frá Brasilíu. En Fly var ekkert skelkaður þrátt fyrir ránin og þrátt fyrir aðvaranir. „Þegar að öllu er gætt“, sagði hann við starfsbróður sinn, innlend- an mann, „hvaða erindi gætu Tupa- maros hugsanlega haft að rækja við mig? Gamlan jarðvegsfræðing". Á rannsóknastofu sinni lenti Fly í samræðum við samstarfsmann sinn frá Uruguay Luisi De Leon pró- fessor. Klukkan nákvæmlega 9:40 þennan morgun, ruddust fjórir menn í borgaralegum klæðum inn á rannsóknastofuna, drógu upp byssur sínar og ógnuðu Fly að fara út um bakdyrnar. Ameríkaninn barðist við skæruliðana, en prófess- orinn, De Leon, kallaði til hans: „Ekki streitast á móti — þeir skjóta þá og drepa þig“. Þegar út úr húsinu var komið, bundu skæruliðarnir fyrir augu Fly og reirðu einnig saman hendur hans og fætur. Honum var svo stungið í stóran strigapoka og kastað aftan á illa útlítandi sendibíl. Mannræn- ingjarnir klifruðu síðan inn í stýr- ishús sendibílsins og óku burt. Þannig hófst 208 daga löng eld- raun Claudes Fly, og jafnframt hófst þarna nýr kapítuli í sögu frelsisbaráttu í Uruguay, baráttu þeirra hreyfinga sem vilja varpa af sér stjórnum, sem kosnar hafa ver- ið á venjulegan, frjálsan hátt. Tupamaros kalla þeir sig. Nafnið er tekið frá Inka-höfðingja, sem á 18. öld var helzti baráttumaður inn- fæddra manna gegn spænskum kúgurum. Skæruliðarnir höfðu fyrir ránið á Fly krafizt þess að stjórnvöldin létu lausa 150 pólitíska fanga, og vildu skæruliðar fá þá í skiptum fyrir Mitrione og Gomide. Strax eftir að Fly hafði verið rænt, hringdu skæruliðar í útvarpsstöð eina og gáfu yfirvöldunum viðVörun: Ef yfirvöld landsins ekki yrðu við kröfum Tupamaros, þá biðu Fly sömu örlög og hinna tveggja: dauð- inn. „ENGUM ILLT“ Eftir langa og erfiða ferð eftir krókóttum, ósléttum götum, var sá særði, marði og örþreytti Fly næst- um borinn, næstum dreginn inn í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.