Úrval - 01.11.1971, Page 52

Úrval - 01.11.1971, Page 52
50 ÚRVAL var við það, þegar Chambers, Temble og hinir komu honum nið- ur um önnur 400 fet. En það átak var líka allt sem þeir orkuðu, því þeir féllu niður, gersamlega úr- vinda. Það fór að rigna, og einhver breiddi plastskýlu yfir andlit Jud- maiers. Eftir stundarkorn, fann Gerd Jud- maier, að skýlan var tekin frá and- liti hans. Hann heyrði Oelz segja, „hann er mjög langt leiddur." Þá heyrði hann aðra rödd: „Heyrðu góði, við komum ekki alla leið hing- að eftir engu!“ Judmaier opnaði augun og sá hjálm týrólsks fjall- göngumanns. „Heyrirðu til mín?“ sagði Austurríkismaðurinn Horst Bergmann við hann, og brosti, láttu þessa ferð okkar ekki verða til einskis farna.“ „OKKUR HEFUR TEKIZ ÞAÐ!“ Austurríkismennirnir komust áfram með undraverðum hraða, en það var mikið að þakka þeim und- irbúningi, sem innlendu fjalla- mennirnir höfðu unnið. Austurrík- ismennirnir bjuggu yfir þeirri þjálf- un og þeim búnaði sem þurfti til að koma fyrir bjarglínum niður þver- hnípta hamraveggi á fáeinum mín- útum, og þeir voru nægilega kröft- ugir til að slaka Judmaier niður eftir böndunum af miklum hraða. Á einni klukkustund höfðu þeir komið Judmaier niður um 130 fet af næsta illfæru fjalllendinu. Þegar svo neðarlega var komið, tók við hið erfiða verk að bera hann niður brattar hlíðar, aflíðandi kletta, þakta glerhálum ísnum. Klukkan 10 um kvöldið náðu þeir niður á sléttlendi og á miðnætti sáu þeir ljósin í búðunum við Kami. „Svo hjálpi okkur Guð, okkur hef- ur tekizt það!“ sagði einhver. Og það reyndist rétt vera. Aust- urríkismennirnir höfðu ferðazt 4000 mílur og tekizt á hendur björgunar- verk, sem er einstætt í sögunni. Þeir sóttu dauðvona mann upp á hættu- legasta fjallstind í Afríku, þar sem hann hafði legið milli heims og helju i átta daga og sjö nætur — þetta afrek unnu þeir á samtals 54 klukkustundum. Gerd Judmaier hefur enn ekki náð sér eftir þessa ferð, þegar þetta er ritað, enn er hann undir um- sjón lækna, en hann finnur til inni- legs þakklætis til allra þeirra manna sem lögðu á sig ótrúlegt erf- iði við að bjarga honum niður af fjallinu, þeirra sem björguðu lífi hans. Faðir hans þakkaði mikillega öll- um sjálfboðaliðunum, og sagði í stuttri ræðu sem hann hélt yfir þeim öllum, „og ég beygi höfuð mitt í djúpri virðingu fyrir unga manninum sem fórnaði lífi sínu fyr- ir mann, sem hann þekkti ekki, hafði aldrei séð. Nafn flugmannsins, Jim Hastings, mun aldrei gleymast í okkar fjölskyldu."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.