Úrval - 01.11.1971, Page 54
52
ÚRVAL
inu, heldur bjuggum við í beztu
gistihúsunum, hvert sem við fórum,
borðuðum á beztu veitingahúsunum
og urðum aldrei fyrir barðinu á
hinum ofboðslega stranga kyn-
þáttaaðskilnaði, sem í landinu ríkir.
Við fórum í ótal ferðir og heim-
sóknir, bæði opinberlega skipulagð-
ar og einnig leynilegar, og heim-
sóttum ótal ólíka staði og fólk, allt
frá hinu íburðarmikla Melville-
hverfi í Jóhannesarborg, þar sem
það er næstum merki um misheppn-
aða ævi að eiga ekki bæði einka-
tennisvöll og sundlaug, til hinna
aumu hreysa svertingjanna í Pim-
ville. Við heyrðum og sáum kvöl
svertingjanna í ríkasta landi Afríku,
fólksins, sem á svo litla hlutdeild í
hinum gífurlegu auðæfum þess.*
Við ræddum við hina hvítu leiðtoga
hins ríkjandi Þjóðernisflokks, sem
sögðu, að þeir álitu litlar horfur á
því, að þessu yrði breytt.
ÚTSKÚFAÐ FÓLK í PARADÍS
Tilgangur minn með þessari grein
er samt ekki að rekja enn á ný alla
þætti kynþáttamisréttisins í Suður-
Afríku í hinum ýmsu myndum. Það
var kvíði og kvöl hvíta fólksins í
Suður-Afríku, sem hafði sterkust
áhrif á okkur, en flest af því vill
halda öllum þeim auðæfum og sér-
*Athugun, sem gerð var árið 1968,
sýndi, að 67.9% íbúanna eru svert-
ingjar, en iþeir fá aðeins 18 8% af
þ.ióðartekjunum (mánaðartekjur
þeirra eru að meðaltali $9.85). En það
kom einnig í ljós, að ihvitir menn eru
19,2% af íhúum landsins, og að í
þeirra hlut komu 73.3% þjóðartekn-
anna (mánaðartekjur þeirra voru að
meðaltali $133.50).
réttindum, sem það nýtur nú, en er
samt farið að koma auga á, hve
hræðilega dýru verði öll þessi vel-
sæld er keypt, jafnvel þótt eingöngu
sé miðað við skerðingu á eigin
frelsi þess. Fordæming mestalls
mannkyns, samtök gegn Suður-Af-
ríku um víða veröld um að kaupa
hvorki vörur þaðan né selja þangað
vörur, viðskiptabönnin og viðskipta-
hótanirnar hafa haft mikil áhrif á
hvíta Suður-Afríkubúa, sem kæra
sig ekki um að vera eins konar
„paríar“, útskúfað fólk í veröldinni.
.. . Það er örugglega hvergi til
eins klofið þjóðfélag í víðri veröld
og í Suður-Afríku. Þar ríkir ótti
um allt og við alla. Sem dæmi um
þennan ótta mætti nefna:
... Margir af hvítum íbúum lands-
ins, sem eru 3.8 milljónir að tölu,
eru helteknir af sektarkennd fyrir
það að neita 14.9 milljónum svert-
ingja um stjórnmálaleg réttindi. En
þeir eru jafnframt hræddir um, að
veiti þeir svertingjunum svolítið
vald, muni þeir að lokum verða að
veita þeim mikið vald. Því halda
þeir dauðahaldi í óbreytt ástand,
sem er jafnframt hættulegt ástand.
... Svertingjar, sem eru alteknir
ótta við öryggislögreglu ríkisins,
óttast svarta svikara í sínum röð-
um í slíkum mæli, að þeir hvísla
jafnvel sjaldan óánægjuorði hver
að öðrum um hið argasta misrétti,
sem þeir eru beittir.
... Þær tvær milljónir þeldökks
fólks (en þá skilgreiningu notar rík-
isstjórnin um kynblendinga, þ.e.
fólk, sem er hvorki algerlega svart
eða hvítt né af óblönduðum asísk-
um kynþætti), óttast einnig hvíta