Úrval - 01.11.1971, Síða 56
54
ÚRVAL
hlotið þessi örlög, og yfir 300 Asíu-
búar, þeldökkir menn og svertingj-
ar.
En Robertson var „heppinn".
Dómsmálaráðherrann hefði getað
fyrirskipað, að hann skyldi settur
í gæzluvarðhald í 180 daga, án þess
að málið kæmi fyrir rétt eða hann
gæti áfrýjað þessum úrskurði. Og
gæzluvarðhald þetta hefði verið
hægt að framlengja um aðra 180
daga og svo koll af kolli, eins lengi
og dómsmálaráðherrann kærði sig
um. Hann hefði einnig getað verið
handtekinn (og síðan verið látinn
koma fyrir rétt eða ekki allt eftir
geðþótta yfirvaldanna) samkvæmt
ákvæðum tveggja óljósra þvingun-
arlaga, sem kölluð eru lög, sem
miða að því að kveða niður komm-
únista og ofbeldis- og ógnalögin. f
maí árið 1970 var til dæmis 19
svertingjum stefnt fyrir rétt sam-
kvæmt fyrrnefndu lögunum. Þeir
voru sýknaðir, en voru svo hand-
teknir aftur að vörmu spori og þeim
stefnt fyrir rétt á ný, sakaðir um
sama glæp samkvæmt síðarnefndu
lögunum. Þeir voru enn á ný sýkn-
aðir. Síðan voru þeir hundeltir af
yfirvöldunum, þangað til þeir voru
að lokum settir í ,,bann“. Þeir hlutu
þannig í rauninni hegningu, án þess
að sú hegning hefði verið ákveðin
að undangengnum réttarhöldum.
Hvers vegna þola hvítir Suður-
Afríkubúar slíka ríkisstjórn og slík
yfirvöld, sem þeir viðurkenna und-
ir fjögur augu, að beiti einu versta
kúgunarstjórnkerfi í víðri veröld?
Vegna þess að þeim hefur verið
kennt það út í yztu æsar að trúa á
yfirburði hvíta kynþáttarins, og að
óttast yfirráð svarta kynþáttarins
meira en hvíta harðstjórn. En
hvergi kemur hinn geigvænlegi
persónuklofningur þeirra betur í
Ijós en þegar þeir reyna að sam-
ræma trú sína á yfirburði hvíta
kynþáttarins yfir þeim svarta þeirri
staðreynd, að þeir verða að reyna
að halda velli á meginlandi, sem er
heimkynni 200 milljón svertingja.
„HVÍTUR“ VIÐHAFNARDREGILL
OKKUR TIL HEIÐURS
Því hafa Suður-Afríkumenn nú
hafið mikla herferð til þess að fá
umheiminn til að álíta þá heldur
betri en þeir eru, án þess að þeir
hafi samt slakað um hársbreidd á
algerum yfirráðum sínum. Það var
einmitt þess vegna sem ríkisstjórn-
in breiddi út „hvítan“ viðhafnar-
dregil fyrir okkur. Það er einmitt
þess vegna, að hún býður nú vel-
komna hópa skemmtiferðamanna og
íþróttamanna frá Bandaríkjunum
og Astralíu, enda þótt í þeim séu
nokkrir svertingjar. „Þeir virðast
vera að láta sig, en aðeins á þeim
sviðum, þar sem þeir þurfa ekki að
leggja neitt þýðingarmikið í söl-
urnar,“ segir einn bandarískur em-
bættismaður um þessa „stefnu-
breytingu" suður-afrísku stjórnar-
innar. En margir af menntuðum
Suður-Afríkubúum þrá það nú
jafnvel enn heitar en ríkisstjórn
þeirra að iosna við það Ku-Klux-
Klan-merki, sem þeir bera nú í
augum umheimsins. En þeir kasta
fljótt frá sér þessari frjálslyndis-
grímu, þegar einhver fer að spyrja
þá í þaula um stjórnmálaréttindi og
vald hinum svarta meirihluta til