Úrval - 01.11.1971, Page 63
HIÐ HEILAGA FLJÓT INDLANDS — GANGES
61
Hið unga fljót
við rætur
Himalajafjalla.
Það syrettur
uvv sem lækur
eða mjó
ársprœna hátt
'uypi í fjöll-
unum, en
slcoppar síðan
af stað í suður-
átt innan um
steina og
hvassar klappir.
verið þá um morguninn. Og hver
farmurinn af öðrum er tekinn af
vögnunum. Páfugl, sem stendur
uppi á múrvegg, breiðir úr skærblá-
um og hvanngrænum fjöðrunum,
þegar dráttarvél er ekið fram hjá,
sem vitnar um hina nýju velgengni
í landbúnaði Indlands með komu
„grænu byltingarinnar“. Ganges-
fljótið sér þetta allt.
Það sér líka borgina Kanpur, borg
ríkra og örsnauðra, borg háværra
vefnaðarverksmiðj a, sútunarverk-
stæða og hergagnaverksmiðja, sem
eru dæmi um hinn mikla iðnvöxt í
Indlandi. En þar má líka sjá þess
glögg merki, að iðnbyltingin þar er
dýru verði keypt. Yfir hálf önnur
milljón manna býr í þessari borg.
Fólkinu er þjappað þar saman eins
og síld í tunnu. Heilar fjölskyldur
hafa aðeins eitt herbergi til um-
ráða í leiguhúsunum eða jafnvel að-
eins hluta úr herbergi. 50.000 manns
á hvergi höfði sínu að halla, heldur
lætur fyrir berast á gangstéttunum.
Gangesfljótið streymir friðsælt rétt
fram hjá útjaðri borgarinnar. En
árið 1967 breytti það skyndilega
stefnu. Hinn nýi farvegur var 5 míl-
ur frá hinum gamla. Það bar með
sér leðju og sand og olli almennum
ótta við skort á vatni og raforku.
Unnið var með 19 moksturvélum
allan sólarhringinn við að halda
opnum 150 feta breiðu síki til hins
ólma risa.
Því er eins farið með Ganges og
Nílarfljót. Gangesfljótið nærir land-
ið, sem það streymir um, flæðir yfir
það á regntímanum og skilur þá
eftir lag á lag ofan af geysilega frjó-
samri leðju. Flóðið sjálft er ógn-
valdur, en leðjan er sannkölluð
blessun. Vatnið hylur stór akur-
flæmi. Það breiðir stöðugt úr sér
líkt og vatnslitur, sem breiðist út
um flötinn á verki málarans. Vegir
lokast, leirkofar hrynja og öll um-
ferð á ánni leggst niður.
í Allahabad mætast fljótin Gang-
es og Jumna, en svo nefnist annað