Úrval - 01.11.1971, Side 64

Úrval - 01.11.1971, Side 64
62 ÚRVAL göfugt Himalajafljót, sem einnig er komið langt ofan úr Himalajafjöll- um. Ljósbrúnn straumur annars og blár straumur hins mætast og renna saman, og lengi má greina litaskilin. Hindúar trúa því, að þarna renni einnig þriðja fljótið, fljót, sem er ósýnilegt mennskum augum, og að það séu þannig þrjú fljót, sem sam- einist þarna og myndi stað þann, sem nefnist „sangam“ og er helg- astur allra staða í Indlandi. Mill- jónir Hindúa koma til þess að baða sig á stað þessum, einkum meðan stendur á trúarhátíðinni Kumbh Mela, sem er haldin þar 12. hvert ár. Á síðustu trúarhátíðinni, sem haldin var þar árið 1966, tóku um 5 mill- jónir Indverjar sér heilagt bað í ánni alveg á hælum hinna nöktu helgu manna, sem nefnast „nanga“, en þeir gengu fremstir í broddi fylk- ingar, er lagt var af stað til fljóts- ins í hið helga bað klukkan 3 að nóttu. Það var einnig hérna, sem 3 milljónir Indverja störðu berg- numdir á það, er ösku sjálfs Ma- hatma Gandhi var dreift yfir Gang- esfljót árið 1948, og einnig er ösku Jawaharlal Nehru var dreift yfir fljótið árið 1964. DÝRMÆT ÓHREININDI Gangesfljót eflist mjög, eftir að það hefur sameinazt Jumna. Nú streymir það áfram í áttina til Ben- eres, einnar elztu borgar Indlands. Beneres er borg mótsagnanna. Hún er borg silki og brókaðiefna, borg Hindúaspeki og þekkingar og list- ræns handbragðs Múhameðstrúar- manna. En samt eru hinar fornu hallir hennar og götur óhreinar, tötralegar og úr sér gengnar. Það er aðeins Gangesfljótið og pílagrím- arnir, sem heimsækja það, sem veita Beneres líf. Ég fylgdist með böðum pílagrím- anna sitjandi í bát úti á ánni, líkt og venja er meðal skemmtiferða- manna í Beneser. Einn ungur píla- grímur vakti athygli mína, þegar hann afhenti Brahmapresti einum sínar fátæklegu éigur, en hann sat undir sólhlíf niðri við ána. Höfuð pílagrímsins var krúnurakað, og hann hafði smurt líkama sinn, svo að fljótsleðjan festist ekki við hann. Og þegar hann dýfði sér niður í ólg- andi strauminn, muldraði hann bæn, sem er eins forn og sjálft Indland: „Ó guð, sól þúsunda skínandi geisla. I þér eru allar hátignirnar saman komnar. Miskunna þú þínum auð- mjúka átrúanda.“ Á eftir málaði presturinn heilagt merki með sand- alaviðarlími á enni pílagrímsins. Ganaes-fljót að monsúnregntíma lokn- um. Þá vex það jafnan mikið og flœöir yfir bakka sína.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.