Úrval - 01.11.1971, Side 80

Úrval - 01.11.1971, Side 80
78 ÚRVAL var, og sá, hvernig allt fór fram, og hún undraöist vizku konungs og dýrð. Reykelsi var brennt, meðan á máltíðinni stóð, og loftið í salnum var þrungið yndislegum ilmi dýrra ilmvatna. Salómon hafði gerhugsað og und- irbúið hvað gera skyldi nótt þessa til þess að honum tækist að vinna ástir Balkis. Samkvæmt áætluninni átti að veita henni mjög kryddaða fæðu, og var þetta þýðingarmikill þáttur áætlunarinnar. Tíu réttir voru bornir fram hver af öðrum, og drottningunni voru bornir kjöt- réttir, er vekja skyldu þorsta henn- ar, og kryddaðir drykkir, er ekki skyldu slökkva þorsta hennar. Að lokum lauk veizlunni, og ráð- gjafar konungs og hirðmenn héldu á brott. Safómon konungur og drottningin frá Saba voru ein eftir, og að lokum gekk hann á bak við hlífina að borði hennar. Salómon sagði við hana: „Ger það fyrir mig að hvílast hér allt til dögunar.“ Þetta voru fyrstu orðin innilegs eðlis, er hann hafði til hennar mælt þá sex mánuði, er hún hafði dvalið í höll hans. Drottningunni frá Saba var ómótt, og hún fann letikennd seytla um allan líkamann. Hún hafði etið og drukkið of mikið. Frammi fyrir sér sá hún manninn, sem hún hafði dáð svo mjög, að hún hafði lagt upp í hina miklu ferð og ögrað hættum eyðimerkurinnar. Hann var klædd- ur dýrlegum veizluklæðum, en hinn konunglegi virðuleikablær var nú horfinn úr svip hans, og hann talaði brosandi til hennar, líkt og karl- maður ta'lar til konu. Hún tók enn eftir því, hversu myndarlegur og glæsilegur hann var, og nú litu augu hans á hana á nýjan hátt. Það hlýt- ur að hafa verið á þessu augnabliki, að hún gerði sér grein fyrir því, hversu heitt hún unni honum. En hún var hrædd. Hvað myndi þjóð hennar segja, ef hún giftist honum? Hún hafði ríkt í sex ár sem meydrottning... það var hennar hlutverk, Salómon myndi ekki halda heim í konungsríki hennar sem eiginmaður hennar. Hún gat ekki dvalið áfram hjá honum í konungsríki hans. Hún fann til hríslandi vellíðun- arkenndar í sál og líkama að veizl- unni lokinni, en samt var sem skiln- ingi hennar ykist ásmegin og ótta hennar einnig. Hún gat elskað þenn- an mann, og hún gat séð, að hann elskaði hana einnig ... eða girntist hana að minnsta kosti. Ást þeirra gæti alls ekki fært þeim gæfu. Þótt þau giftust, og það var auðvelt að koma því kring í þá daga, yrði hún samt að halda heimleiðis og lifa alla sína ævi í minningum nokkurra sætra augnablika. Drottningin frá Saba var því hrædd. Hún sagði: „Sver þú mér í nafni guðs, guðs ísraels, að þú munir ekki taka mig með valdi. Samkvæmt lögum mann- anna er ég enn hrein mey, og yrði ég tæld, myndi ég halda leiðar minnar í sorg og þrúgandi kvöl.“ Salómon hafði einmitt óskað sér slíkra viðbragða frá hennar hálfu, og hann hafði því svar á reiðum höndum. Hann svaraði: „Ég sver þér, að ég muni ekki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.